Stjórnmálaályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins var samþykkt nú síðdegis.
Í ályktuninni segir að Sjálfstæðisflokkurinn vilji að lokið verði við þær framkvæmdir sem eru yfirstandandi á Landspítalareit. Sjálfstæðisflokkurinn vill hinsvegar að farið verði í staðarvalsgreiningu fyrir framtíðaruppbyggingu sjúkrahúsþjónustu.
Stjórn Verkfræðingafélags Íslands hefur lýst því yfir að slík greining myndi taka tvö ár að lágmarki.
Svandís Svavarsdóttir sagði eftirfarandi í grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 4. desember síðastliðinn: „Framkvæmdir við nýjan meðferðarkjarna Landspítala munu svo hefjast næsta sumar. Stefnt er að því að bygging spítalans taki fimm til sex ár og að hann komist í notkun á árinu 2023.“
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur segir að framkvæmdir við meðferðarkjarna Landspítala muni hefjast nú í sumar. Ganga drög þessi því í berhögg við yfirlýsingar heilbrigðisráðherra og stjórnarsáttmála flokkanna þriggja, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna.
Ályktunin segir að Sjálfstæðisflokkurinn vilji „horfa til fjölbreyttra rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu“ og að gera þurfi „heilbrigðisstéttum kleift að stunda sjálfstæðan rekstur.“ Á sama hátt vill flokkurinn fjölga sjálfstætt starfandi skólum, leggja niður ÁTVR, selja eignarhlut í bönkunum og ráðast í frekari einkavæðingu þar sem ríkið er í samkeppnisrekstri.
Þá vill Sjálfstæðisflokkurinn efla geðheilbrigðisþjónustu, halda Íslandi í fremstu röð í jafnréttisbaráttunni og efla forvarnir gegn ofbeldi svo eitthvað sé nefnt. Drögin sjálf má nálgast hér.
Landsfundur Sjálfstæðisflokks vill staðarval fyrir sjúkrahús

Tengdar fréttir

Vill láta taka fastar á byrlun nauðgunarlyfja
Tillaga um nauðgunarlyf var samþykkt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fer fram um helgina.

Bein útsending: Ræða Bjarna Ben á landsfundi Sjálfstæðisflokksins
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, setur 43. landsfund Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll kl. 16:30 í dag. Landsfundurinn stendur yfir um helgina.

Lofaði skattalækkunum og skaut á Viðreisn
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt setningarræðu sína á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag.