Daníel Bjarnason átti afkastamikið ár í fyrra og var framlag hans til tónlistarlífsins ómetanlegt og viðamikið. Hlýtur hann fyrstur tónlistarfólks sérstaka viðurkenningu Samtóns og Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir störf sín á sviði tónlistar þess vegna. Það var forseti Íslands herra Guðni Th. Jóhannesson sem veitti Daníel verðlaunin en auk þess að hljóta þau vann Daníel verðlaun fyrir plötu ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar fyrir plötuna Recurrence þar sem hann stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Fyrsta ópera hans, Brothers, var valin tónverk ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar og að lokum var Undir trénu, tónlist Daníels við samnefnda kvikmynd valin plata ársins í flokki kvikmynda og leikhústónlistar.

Í flokki popp og rokktónlistar var það fyrst Nýdönsk og svo Mammút sem komu sáu og sigruðu. Nýdönsk hlaut fern verðlaun en Mammút þrenn - og spegluðu sveitirnar hvor aðra á skemmtilegan hátt. Platan Á plánetunni Jörð með Nýdönsk var valin poppplata ársins á meðan fjórða breiðskífa Mammút á ferli sveitarinnar, Kinder Versions, var valin rokkplata ársins.
Rokklag ársins - Breath into me með Mammút
Fjórðu verðlaun Nýdanskrar hlutu þeir Björn Jörundur og Daníel Ágúst þegar þeir voru útnefndir textahöfundar ársins fyrir texta sína á plötunni Á plánetunni Jörð.
Popplag ársins - Stundum
Plata ársins í Rapp og hip hop var platan Joey með Joey Christ en hann átti einnig lag ársins í flokki rapptónlistar þar sem lagið Joey Cypher stóð uppi sem sigurvegari en lagið flytur Joey Christ ásamt Herra Hnetusmjör, Birnir og Aron Can. Þetta er í annað sinn sem veitt eru verðlaun fyrir rapp og hiphop-tónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Joey Cypher er lag ársins í flokki rapptónlistar.
I'd Love var valið tónlistarmyndband ársins.
JóiPé og Króli komu iðandi ferskir og sprækir inn á tónlistarsenuna á síðasta ári þegar þeir sprengdu vinsældarskalann með B.O.B.A. og heilluðu alla tónlistaraðdáendur upp úr skónum. Árið var þeirra og framkoma þeirra og fas lét engan ósnortinn og því kemur það ekki á óvart að þeir hafi fengið verðlaun sem tónlistarflytjandi ársins 2017.
BOBA með JóaPé og Króli var á hvers manns vörum í fyrra.
Tónlistarviðburður ársins var af dýrari gerðinni en Íslensku tónlistarverðlaunin hlaut Gloomy Holiday í Hörpu sem var hluti af tónleikahátíð Sigur Rósar, Norður og Niður. Hugmyndin var tiltölulega einföld, að taka þekkt jólalög og setja þau í „Sigur Rósar“-legan búning, hægja á þeim og setja í þunglamalegri útsetningar. Skemmst er frá því að segja að hálf þjóðin fór á hliðina yfir tiltækinu og sitt sýndist hverjum. Tvímælalaust einir umtöluðustu og umdeildustu tónleikar seinni tíma.
Margt býr í þokunni, plata Snorra Helgasonar, hlaut tvenn verðlaun. Hún var valin Þjóðlagaplata ársins auk þess sem plötualbúmið þótti það besta að mati dómnefndar en það var Þrándur Þórarinsson sem myndskreytti en uppsetning og umbrot gerði Björn Þór Björnsson. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaun eru veitt fyrir þjóðlagatónlist og það sama gildir um lag ársins í opnum flokki en verðlaunin fengu félagarnir Egill Ólafsson og Sigurður Bjóla fyrir lagið Hósen Gósen af stórgóðri plötu Egils, Fjall.
Hinn fjölhæfi tónlistarmaður Valgeir Sigurðsson átti plötu ársins í opnum flokki þar sem hann býður hlustandanum upp á afar spennandi ferðalag á sinni nýju sólóplötu, Dissonance sem dómnefnd segir bæði heillandi og sterka i umsögn sinni.
Hér má sjá frá Gloomy Holiday tónleikunum í Hörpu.
Víkingur Heiðar Ólafsson hlaut tvenn verðlaun í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Hann fékk verðlaun fyrir tónlistarviðburð ársins fyrir tónleika sína í Eldborg með verkum Philip Glass en auk þess var Víkingur valinn tónlistarflytjandi ársins. Söngvarar ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar voru þau Ólafur Kjartan Sigurðarson og Dísella Lárusdóttir.
Ólafur Kjartan var verðlaunaður fyrir skarpa og kraftmikla túlkun á illmenninu Scarpia í Toscu en Dísella fyrir glæsilega einsöngstónleika á Reykholtshátíð þar sem efnisskráin spannaði hin gullnu ár ljóðatónlistar og var sett saman af miklu innsæi.
Víkingur Heiðar átti enn eitt glæsilegt árið við slaghörpuna.
Freyjujazz var valinn tónlistarviðburður ársins í flokki djass og blús en tónleikaröðin hóf göngu sína í Listasafni Íslands í byrjun árs 2017 og voru haldnir alls 26 tónleikar á árinu. Markmið Freyjujazz er að gera konur sýnilegri í djassi auk þess að skapa vettvang fyrir djasskonur að koma fram og þannig ýta undir aukið samstarf kynjanna.
Björtustu vonirnar
Bjartasta vonin í poppi, rokki, rappi og raf var tilnefnd af starfsfólki Rásar 2 eins og undanfarin ár. Kosning fór fram á vef Rásar 2. Það var hljómsveitin Between Mountains sem hlaut verðlaunin í ár en sveitina skipa tvær sextán og sautján ára stelpur frá Vestfjörðum - þær Katla Vigdís Vernharðsdóttir og Ásrós Helga Guðmundsdóttir. Between Mountains vakti m.a. áhuga Rolling Stone á Iceland Airwaves í haust sem sagði hljómsveitina eina af þeim áhugaverðustu á hátíðinni.
Between Mountains sló í gegn á árinu.
Þrátt fyrir ungan aldur er með sanni hægt að segja að Baldvin hefur nánast fullmótaðan stíl, sér í lagi þegar kemur að tónsmíðum. Hann hefur lag á að semja tónlist sem er í senn krefjandi og áferðarfalleg.
Lagið Sund milli stríða er á plötunni Renewal.
Óhætt er að segja að Jóhann hafi heillað áheyrendur upp úr skónum með sinni frábæru rödd og hreint magnaðri túlkun. Frábær frammistaða sem er vísir á enn frekari afrek á tónlistarsviðinu að því er segir í niðurstöðu dómnefndar.
Að þessu sinni var röðin komin að sjálfum Stuðmönnum að hljóta heiðursverðlaun Samtóns en mennta og menningarmálaráðherra Lilja Alfreðsdóttir veitti Stuðmönnum verðlaunin en þessi merka hljómsveit sem tók sín fyrstu skref árið 1970 í nýstofnuðum menntaskóla í Hlíðunum sló einnig botninn í útsendingu kvöldsins – lokuðu sýningunni eins og Stuðmönnum er einum lagið með pompi og prakt.
Stuðmenn hafa veitt þjóðinni ómælda gleði með grípandi söngvum og textum á löngum ferli. Meðlimir Stuðmanna, fyrr og síðar, hljómsveitar allra landsmanna, eru sannir og verðskuldaðir heiðursverðlaunahafar Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Hver þekkir ekki Stuðmenn? Hér troða þau upp í Royal Albert Hall um árið.