„Við skulum orða þetta þannig; alls ekki sama gremja og maður hefur orðið var við í öðrum málum, sérstaklega ríkisstjórnarmyndunina. Það er eðlilegt aðhald, fólk spyr um stóru málin sem eru kjör aldraðra, öryrkja og lágtekjuhópa. En, þar er mikil vinna að ná fram raunverulegum og varanlegum kjarabótum. Sem þessi áætlun segir skýrt að skuli fara fram nú þegar.“
Þetta er ekki vinstrimennska
En, reyndar er það nú svo að ekki þarf að ferðast langt og lengi um netið til að sjá að verulegrar gremju gætir vegna þeirrar fjármálaáætlunar sem ríkisstjórnin kynnti nú í vikunni. Línan er sú að hún gagnist fyrst og fremst þeim ríku. Fyrrum félagi í Vinstri grænum, Grímur Atlason, segir þetta vitleysu og óréttlæti á Facebooksíðu sinni í morgun:„Tekjuskattur allra lækkar um 1% (lægra þrepið). Það gagnast mest þeim sem fá hæstu launin. Þannig þýðir 1% lækkun tekjuskatts á 300.000 kr. laun, að frádregnum persónuafslætti, um 1.415 kr. eða tæpar 17.000 kr. á ári. En sá sem er með 1 m.kr. á mánuði fær 8.235 kr. eða 98.000 kr. árlega,“ segir Grímur:
Þetta er ekki vinstrimennska. Þetta vitleysa og óréttlæti.Edward er helst á því að þetta séu heldur kaldar kveðjur og ósanngjarnar frá Grími.
Óþarfa háreisti og köll í Grími
„Mér þykir þetta nú vera óþarfa háreisti,“ segir varaformaðurinn og telur stóryrtan Grím kominn langt framúr sér.„Menn með reynslu í pólitík vita það náttúrlega að þetta er nú ekki svona klippt og skorið, svart og hvítt og einfalt. Almennt varðandi umræðuna: Þessi fjármálaáætlun er meiriháttar plagg.

Ósáttir öryrkjar
En, Grímur er ekki einn um að telja fjármálaáætlunina helst gagnast hinum ríku. Öryrkjabandalag Ísland hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með fjármálaáætlunina og sagt hreint út að hún sé ávísun á fátækt og eymd, eins og Vísir sagði af í gær.
„Brýnasta verkefnið á þessu ári er samráð við hagsmunasamtök örorkulífeyrisþega, hvernig við lögum bótakerfið og bætum kjör. Það er gert ráð fyrir verulegri aukningu í árlegum framlögum til örorkulífeyrisþega, það er að segja 4 milljarða króna á tímabili áætlunarinnar.“
Sigurður G. segir þetta ósvinnu og er hættur
En, hvað sem líður orðum Edwards er gremjan sem víða má greina ekki orðum aukin. Einn örorkulífeyrisþegi er útvarpsmaðurinn Sigurður G. Tómasson sem vandar Vg ekki kveðjurnar.Það er bæði heimskulegt og hættulegt að skattleggja ekki sérstaklega ofurlaun. Einsdæmi í veröldinni að svokallaður vinstri flokkur taki þátt í svona ósvinnu.Þetta segir Sigurður á Fb-síðu sinni. Og lýsir því yfir að hann sé hættur í Vg.
„Nú er okkur sagt að fjárhagur ríkisins hafi aldrei verið betri. VG í stjórn. Er þá ekki fyrsta verkið að lagfæra kjör okkar og draga úr ójöfnuði sem hefur aldrei verið meiri. Nei ekki aldeilis. Samferð minni og VG er lokið,“ segir Sigurður. Og það vantar ekkert uppá undirtektir við þau orð hans sem snúa að svikum Katrínar Jakobsdóttur við bótaþegar og láglaunamenn.
Ekkert miðað við stjórnarmyndunina
Þegar þetta er borið undir Edward Hákon segist hann ekki hafa orðið eins mikið var við gremju og þarna er lýst.
Gremjan á misskilningi byggð
Edward segir að sú gremja sem þó má greina sé á misskilningi byggð. „Menn eiga von á því að í fjármálaáætlun til fimm ára sé skilgreint nákvæmlega einhverjar krónutölur sem eiga að fara hingað og þangað. En, þá hefur verið bent á að þarna er um áætlun að ræða sem snýr að stóru dráttunum, hvernig eigi að miðla fjármunum. Og þá hafa menn sagt: Já, þú meinar.“En, þó Edward greini ekki mikla óánægju í sínum hópi og vilji í raun sem minnst af henni vita, þá er hana eigi að síður víða að finna, sem áður segir. Logi Einarsson, formaður Samfylkingar, fordæmdi fjármálaáætlunina í viðtali við Harmageddon í gær. Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi á Akranesi gerði það einnig í viðtali við Bylgjuna. Og þannig má lengi telja. Allt er þetta á þeim forsendum að þarna sé, enn og aftur, verið að hygla þeim ríku en þeir sem minna mega sín fá að sitja á hakanum.
Trúarbrögð Sjálfstæðisflokksins
Þetta þykir mörgum skjóta skökku við þegar um er að ræða ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Edward segir að ekki megi gleyma að Vg er ekki ein í ríkisstjórn.„Þeir eru ekki mikið til vinstri hinir flokkarnir sem þar sitja. Og sá flokkur sem ræður í fjármálaráðuneytinu.
Þar eru trúarbrögð sem varðar flatan tekjuskatt.Það er borðleggjandi leið til að auka misskiptingu. Og þeir eru alltaf á þeirri vegferð. Við höfum náð að skrúfa þá niður í eitthvað eitt prósent. Það finnst mér nú bara vera árangursríkt. En, hitt er stóra myndin sem er að þetta verði varanlegar kjarabætur.“