Ásgarðslaug opnar kl. 10 sumardaginn fyrsta eftir miklar endurbætur. Í tilefni af því verður boðið upp á tónlistaratriði innandyra og hressingu við sundlaugarbakkann. Ókeypis aðgangur verður í laugina á opnunardag og allt fram til 22. apríl.
Nýir heitir pottar hafa verið byggðir með nuddstútum undir yfirborðinu.Vísir / VilhelmNýr kaldavatnspottur var byggður.Vísir / VilhelmByggð var ný vað- og setlaug með barnarennibraut.Vísir / VilhelmGufubaðið hefur verið endurnýjað.Vilhelm / VísirÚtiklefar hafa verið endurnýjaðir.Vísir / VilhelmÍ inniklefum eru nýir klefar fyrir fatlað fólk.Allar sturtur hafa verið endurnýjaðar.Vísir / VilhelmÍ nýju vaktherbergi verður eftirlits- og myndavélakerfi sem eykur öryggi sundlaugargesta.Vísir / Vilhelm