Fókusinn hjá Wenger á Evrópudeildinni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. apríl 2018 16:30 Wenger verður að vinna Evrópudeildina til að fá sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili vísir/getty
Leikur Arsenal og CSKA Moskvu í Evrópudeild UEFA kvöld ætti að vera lítið meira en formsatriði eftir 4-1 sigur Arsenal á heimavelli í fyrri leik liðanna í síðustu viku. Arsene Wenger fer þó ekki inn í þann leik af varkærni því hann ætlar sér að vinna Evrópudeildina. Í febrúar sagði Wenger ótímabært að setja allan fókus á Evrópudeildina en nú hefur hann skipt um skoðun. „Evrópudeildin er okkur mikilvæg og við erum komnir á þann stað þar sem við einbeitum okkur að henni því möguleikar okkar á að komast hærra í úrvalsdeildinni eru mjög, mjög, mjög litlir,“ sagði Wenger. „Evrópudeildin er eitt af okkar helstu markmiðum á tímabilinu.“ Arsenal er í sjötta sæti í ensku úrvalsdeildinni, 13 stigum frá Tottenham í fjórða sætinu þegar sex umferðir eru eftir. Skytturnar eru í nákvæmlega sömu stöðu og Barcelona var í Meistaradeildinni fyrr í vikunni, með 4-1 forystu eftir fyrri leik á heimavelli og allt útlit fyrir að þeir væru með bókað sæti í undanúrslitum. Roma sló hins vegar spænsku meistaraefnin úr leik með frábærum 3-0 sigri á heimavelli sínum. Wenger segir þessi úrslit hafa komið á fullkomnum tíma sem viðvörun fyrir leikmenn sína. Granit Xhaka flaug ekki með Arsenal til Rússlands vegna veikinda, Henrikh Mkhitaryan er meiddur á hné og Pierre-Emerick Aubameyang má ekki taka þátt í Evrópukeppninni. Leikur CSKA og Arsenal er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 19:05 í kvöld.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Fleiri fréttir Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjá meira