Nýtt uppgjör Twitter leiðir í ljós að breytingar sem fyrirtækið gerði til að afla sér auglýsingatekna og taka þannig tekjur frá Facebook og Google virðast hafa skilað sér.
Á síðasta fjórðungi skilaði Twitter hagnaði í fyrsta sinn í tólf ára rekstrarsögu fyrirtækisins. Greiningaraðilar á markaði bjuggust við að fyrirtækið myndi skila tapi á ný en samkvæmt nýju uppgjöri hagnaðist félagið um 61 milljón dollara, jafnvirði 6,1 milljarðs króna, á síðasta ársfjórðungi.
Tekjur og virkni notenda jukust meira en búist var við að því er fram kemur í Financial Times. Jack Dorsey, forstjóri og stofnandi Twitter, sagði í tilefni af uppgjörinu að jafnvægi kæmi líklega á virkni notenda eftir að Twitter hefði kynnt breytingar sem munu bæta skilaboðaskjóðu forritsins.
Twitter hefur verið að sækja í sig veðrið undanfarið og hefur fjöldi notenda aukist eftir að hafa staðið í stað um nokkurra ára skeið.
Þrátt fyrir fréttir af jákvæðri afkomu lækkuðu hlutabréf Twitter um 3,6 prósent við opnun markaða í Kauphöllinni í New York í dag og var gengið 29,36 dollarar á hlut í fyrstu viðskiptum.
Twitter hefur aðeins brot af notendafjölda Facebook en 262 milljónir manna nota Twitter á heimsvísu meðan tveir milljarðar manna hafa skráð sig fyrir aðgangi að Facebook.
Nokkur spenna er í loftinu vegna uppgjörs Facebook sem verður birt síðar í dag en það verður fyrsta uppgjörið eftir Cambridge Analytica hneykslið.
Twitter skilar hagnaði annan fjórðunginn í röð
Þorbjörn Þórðarson skrifar

Mest lesið

Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti
Atvinnulíf

Kalifornía fjórða öflugasta efnahagsríki heims
Viðskipti erlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð
Viðskipti innlent

Gefur eftir í tollastríði við Kína
Viðskipti erlent


Kaupsamningur undirritaður um Grósku
Viðskipti innlent

Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð
Viðskipti erlent


Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn
Viðskipti erlent