Virði félagsins Into the Glacier, sem býður upp á daglegar ferðir inn í ísgöngin í Langjökli, jókst um ríflega 55 prósent í bókum stærsta eiganda þess, framtakssjóðsins Landsbréf Icelandic Tourism Fund, í fyrra og var félagið metið á um 1.565 milljónir króna í lok ársins.
Sjóðurinn, sem er í eigu Icelandair Group, Landsbankans og sjö lífeyrissjóða, bætti við eignarhlut sinn í félaginu á síðasta ári og átti í lok ársins 96 prósenta hlut sem var þá metinn á ríflega einn og hálfan milljarð, að því er fram kemur í nýbirtum ársreikningi. Til samanburðar átti framtakssjóðurinn 88 prósenta hlut – að virði 885 milljónir króna – í lok árs 2016.
Ísgöngin, sem eru stærstu manngerðu ísgöng í heimi, eru stærsta einstaka eign framtakssjóðsins. Virði 55 prósenta eignarhlutar framtakssjóðsins í LAVA, eldfjallaog jarðfræðisýningu á Hvolsvelli, jókst jafnframt um 63 prósent í bókum sjóðsins í fyrra og var metið á 240 milljónir í lok ársins. Þá seldi sjóðurinn allan hlut sinn í félaginu IWE, sem rekur hvalasýningu á Grandanum, fyrir um 440 milljónir króna.
Kaupandi var ST Holding, eignarhaldsfélag Special Tours, sem er í meirihlutaeigu Eyþórs Arnalds fjárfestis, en sjóðurinn festi um leið kaup á þriðjungshlut í því félagi. Var sá hlutur metinn á 821 milljón króna í lok liðins árs. Auk þess keypti framtakssjóðurinn 20 prósenta hlut í Íslenskum heilsulindum, dótturfélagi Bláa lónsins, sem fjárfestir einkum í baðstöðum og er meðal annars einn af stærstu hluthöfum jarðbaðanna við Mývatn.
Eignarhlutur sjóðs Landsbréfa í félaginu nam um 367 milljónum í lok síðasta árs. Alls hagnaðist framtakssjóðurinn um 368 milljónir króna í fyrra borið saman við 390 milljóna hagnað árið áður. Átti sjóðurinn eignir fyrir ríflega fjóra milljarða í lok árs 2017. Fjárfestingatímabili sjóðsins lýkur á þessu ári og er gert ráð fyrir að honum verði slitið árið 2022. Samtals voru innkallaðar 1.210 milljónir króna í fyrra en ódregin hlutafjárloforð voru um 850 milljónir í lok ársins.
