Árangur íslenska karlalandsliðsins í fótbolta hefur ekki farið framhjá neinum undanfarið enda HM í knattspyrnu í hámæli. Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur líka vakið athygli og til Íslands streyma fjölmiðlar og erindrekar erlendra stjórnvalda til að fræðast um hvað liggur að baki þessum aðdáunarverða árangri smáþjóðar í íþróttum á heimsmælikvarða. En það er fleira sem fólk vill fræðast um, til dæmis árangur Íslendinga í forvörnum. Fjölmiðlar og ýmsir álitsgjafar hafa talað um íslenska víkinga, að börn fái kjöt í morgunmat, sturti í sig lýsi og skyri o.s.frv. Þekktar klisjur sem hafa ákveðið skemmtanagildi. En hvað liggur hér í raun að baki?
Tuttugu ára tilraun
Á tíunda áratug síðustu aldar var vímuefnaneysla ungmenna vaxandi vandamál í íslensku samfélagi. Um helgar flykktust unglingar í miðbæ Reykjavíkur og þegar skemmtistaðir lokuðu allir á sama tíma var óhefluð þjóðhátíðarstemning á Lækjartorgi um hverja helgi.
Þar voru oft börn á ferli undir áhrifum og án eftirlits. Þær leiðir sem beitt hafði verið til að stemma stigu við þessu fólust einkum í að fræða ungt fólk um skaðsemi vímuefnaneyslu en hræðsluáróðurinn virkaði ekki. Ný stefna var mörkuð og hún byggð á rannsóknum. Markmiðið var að kortleggja þá félagslegu þætti sem haft gætu áhrif á vímuefnaneyslu ungmenna og í kjölfarið skipuleggja aðgerðir í forvarnarstarfi. Ýmsir hagsmunaaðilar tóku höndum saman - rannsakendur, stjórnmálamenn, fólk sem starfaði með börnum og unglingum sem og foreldrar. Allir lögðust á eitt. Sjálfræðisaldur var hækkaður í 18 ár árið 1997 og árið 2002 voru sett lög um útivistarreglur barna. Ýmis grasrótasamtök voru í samstarfi við stjórnvöld, hnykkt var á foreldrasamstarfi í nýjum menntalögum árið 2008 og útkoman af þessu öllu var hið íslenska módel sem snýst um samspil rannsókna og stefnumótunar á sviði áfengis- og vímuefnamála þegar kemur að ungu fólki og forvörnum. Foreldrar, kennarar, íþróttafélög, félagsmiðstöðvar og fleiri fóru að tala saman og samhæfa aðgerðir en eitt það mikilvægasta í þessu samhengi var stuðningur foreldra og skóla og aukin tækifæri ungmenna til að stunda skipulagt tómstundastarf.
Fjölþættur stuðningur
Á þeim tíma sem íslenska módelið var að ryðja sér til rúms hófu sveitarfélög um land allt mikla uppbyggingu á íþróttamannvirkjum og aðstöðu til íþróttaiðkunar þannig að börn gætu stundað íþróttir allan ársins hring, óháð veðri. Byggðir voru sparkvellir nálægt skólum m.a. fyrir peninga sem fengust fyrir sýningarrétt á fótbolta í sjónvarpi og áhersla var lögð á að sem flestir hefðu aðgang að íþróttinni. Einnig var unnið að því að fá fleiri þjálfara með tilskilin réttindi og nú er það svo að flest öll börn geta sótt æfingar hjá íþróttafélögum undir leiðsögn viðurkenndra þjálfara. Sveitarfélög veita tómstundastyrki sem foreldrar ráðstafa í þær tómstundir sem barnið stundar og markmiðið er að skapa sem mestan jöfnuð þannig að öll börn fái tækifæri til að vera í tómstundastarfi og prófa sig áfram. Áherslan er því á að blanda saman leik og námi þannig að útkoman verði sem best. Þá er ekki aðalmarkmiðið að við eigum sterk landslið heldur að við byggjum upp sterka einstaklinga sem standa sig vel í leik og starfi. Ef börn hafa nóg fyrir stafni og nýta tíma sinn á uppbyggilegan hátt er líklegra að þau ástundi heilbrigt líferni, líði vel í eigin skinni og standi sig vel í námi. Að baki öllu þessu starfi eru síðan fjöldamargir foreldrar sem styðja við bakið á börnunum sínum og halda hlutunum gangandi. Erfitt væri að halda þessi stóru íþróttamót án aðkomu foreldra sem vinna mikilvægt sjálfboðastarf, halda utan um börnin og afla tekna.
Við erum í þessu saman
Margir velta fyrir sér formúlunni að baki velgengni Íslendinga í knattspyrnu. Svarið er margþætt og í stuttu máli sagt felst það í mikilli vinnu, samstarfi og samhug. Ekki einungis er liðsheildin góð og leikgleðin í fyrirrúmi heldur höfum við sem þjóð ákveðið að setja tiltekna hluti í forgang þegar kemur að því að byggja gott samfélag fyrir börnin okkar að alast upp í. Það er í raun lykillinn að allri velgengni.
Höfundur er framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra.

Víkingablóð og kjöt í morgunmat
Skoðun

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar