Þór/KA á toppinn eftir sigur á Stjörnunni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. júlí 2018 20:08 Sandra María Jessen skoraði þriðja mark Þórs/KA vísir/eyþór
Íslandsmeistarar Þórs/KA fóru í toppsæti Pepsi deildar kvenna með sigri á Stjörnunni á Akureyri. ÍBV sigraði Suðurlandsslaginn í Vestmannaeyjum. Toppbaráttan í Pepsi deildinni er gríðarlega jöfn og Blikar geta endurheimt toppsætið með sigri á Val í kvöld. Stjarnan hefði getað blandað sér í toppbaráttuna af fullum krafti með sigri en á þó enn möguleika á því að halda í við efstu þrjú liðin. Heimakonur komust yfir eftir klafs í teignum upp úr hornspyrnu á 22. mínútu og voru 1-0 yfir þegar flautað var til hálfleiks. Anna Rakel Pétursdóttir kom Þór/KA yfir á 49. mínútu og fyrirliðinn Sandra María Jessen bætti þriðja markinu við tíu mínútum seinna, bæði komu mörkin eftir sendingu frá Söndru Mayor. Anna María Baldursdóttir náði að skora sárabótamark fyrir Stjörnuna á 76. mínútu og það var ekki af verri gerðinni, glæsimark beint úr aukaspyrnu frá miðjuhringnum. Þegar markið kom var enn nægur tími fyrir Stjörnuna til þess að koma til baka en nær komust þær ekki, lokatölur 3-1. ÍBV og Selfoss mættust í Suðurlandsslag á Hásteinsvelli. Bæði lið voru með 8 stig fyrir leikinn í 6. og 7. sæti. Sigríður Lára Garðarsdóttir skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Shameeka Fishley átti misheppnað skot sem endaði á kollinum á Sigríði Láru og hún skallaði beint í markið. ÍBV fer með sigrinum upp fyrir Grindavík í 5. sæti deildarinnar. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Enski boltinn Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Fótbolti Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Fótbolti Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Evrópumeistararnir fóru hamförum Fótbolti Fleiri fréttir „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ „Hugur minn er bara hjá henni“ Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Viðar Örn að glíma við meiðsli Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-4 | Engin hamingja hjá heimakonum Uppgjörið: Tindastóll - FHL 1-0 | Stólarnir sýndu enga miskunn Bærinn seldi tækin úr ræktinni: „Vona að Fjarðabyggð sjái að sér“ Segir vandræðalegt að Valur hafi ekki unnið KR „Skemmtilegt að þroskast þannig sem leikmaður“ Sjá meira