Flugfélagin tvö birtu í vikunni helstu flutningatölur fyrir júlí og var skarpur munur þar á. Annars vegar nam fjöldi farþega Icelandair 519 þúsundum og fækkaði þeim um fimm prósent miðað við júlí á síðasta ári. Hins vegar flutti WOW air 409 þúsund farþega eða um 29 prósentum fleiri en í júlí árið 2017. Sætanýting flugfélaganna var einnig ólík. Hún var 92 prósent hjá WOW air en 85,3 prósent hjá Icelandair.
Farþegum Icelandair fækkaði á milli ára í fimm af þeim sjö mánuðum sem eru liðnir af árinu. Tíu prósenta fjölgun í maí heldur félaginu þó réttu megin við núllið. Sé litið aftur til áramóta hefur Icelandair flutt 2.294.000 farþega, eða rúmlega 0,1 prósenti fleiri en á sama tímabili í fyrra.

Öfugrar þróunar gætir hjá WOW air. Farþegum hefur fjölgað á milli ára í hverjum mánuði frá áramótum og sömu sögu má segja af sætanýtingunni sem hefur batnað undantekningalaust.
„Í áætlunum okkar var ekki gert ráð fyrir verulegum vexti í fjölda farþega,“ segir Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group. „Í júlí erum við að sjá sömu þróun og var á öðrum ársfjórðungi. Sala á áfangastaði okkar í N-Ameríku hefur ekki fylgt framboðsaukningunni eftir á meðan sala til Evrópu hefur verið mjög góð.“
Bogi segir að skýra megi lakari sætanýtingu með sama hætti. Hann bendir á að til samanburðar hafi sætanýting á leiðum Icelandair í Evrópu verið 90,7 prósent og aukist um 2,9 prósentustig á sama tíma og sætanýting á leiðunum í Norður-Ameríku hafi verið 81,9 prósent og lækkað um 8,9 prósentustig.
Offramboðið ósjálfbært
Icelandair hefur að undanförnu aukið framboð sitt töluvert. Þannig hefur framboð sætiskílómetra aukist um að meðaltali um fimm prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Bogi segir að félagið sé að meta hvernig haga eigi framboðinu á næstu mánuðum.„Framboð á sætiskílómetrum er til stöðugrar skoðunar hjá félaginu. Við metum framboð og eftirspurn og tökum ákvarðanir um áætlun byggt á því mati. Við erum núna að skoða haustið og veturinn með tilliti til þessa.“
Spurður um horfurnar út árið svarar Bogi því að aðstæður séu krefjandi. „Við gerum ráð fyrir því að samkeppnin verði áfram hörð en offramboð á tilteknum mörkuðum getur aldrei gengið til lengdar. Sama gildir um verðþróun; hækkun olíuverðs og annarra kostnaðarliða kemur alltaf á endanum fram.“
Þegar lokað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni í gær hafði verð hlutabréfa í Icelandair lækkað um 3,4 prósent.