Í tilkynningunni segir að umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar hafi nýlega verið falið af borgarráði að útfæra tillögur að göngugötum til framtíðar á völdum svæðum í miðborginni. „Sviðinu var einnig falið að útfæra endurhönnun göngusvæða með tilliti til öryggis og vellíðunar gangandi vegfarenda og vandaðrar borgarhönnunar. Algild hönnun með aðgengi fyrir alla verður höfð að leiðarljósi við útfærsluna í samráði við notendur og viðeigandi hagsmunasamtök.
Starfsfólk sviðsins hefur hafist handa við þetta verkefni. Tímaáætlun er í mótun og einnig uppsetning upplýsingasíðu um verkefnið. Í samráðsferli gefst hagsmunaaðilum kostur á að taka þátt í hönnunarferlinu. Hönnunin mun taka mið af bættu aðgengi inn í verslanir þar sem því verður við komið. Samhliða verður unnið deiliskipulag fyrir þær göngugötur sem verða til framtíðar. Gert er ráð fyrir að ferlið standi yfir til vors. Boðað verður til funda um verkefnið til að safna hugmyndum um útfærslur.