Eiginkona Howard, Kara Box, ræddi við blaðamann Star-Telegram og lét hann fá myndband af skotárásinni sem hún tók upp á síma sinn.
Hún segir Howard hafa hent dýnu í gám fyrir aftan hús þeirra nokkrum dögum áður en þann 1. september sáu þau að auð dýnan var komin inn á lóð þeirra. Howard fór því út og henti dýnunni aftur í gáminn. Skömmu seinna sáu þau John Miller taka dýnuna úr gámnum og henda henni inn á lóð þeirra hjóna.
Box segir Howard hafa gengið upp að Miller og sagt honum að setja dýnuna aftur í gáminn. Hún segir Miller hafa orðið reiðan og hann hafi neitað. Því næst hafi hann dregið skammbyssu úr stuttbuxum sínum.
Þá voru lítil börn í bakgarði hjónanna og Box segir Howard hafa orðið mjög reiðan og þeir hafi farið að rífast. Skömmu seinna hafi Michael Miller mætt með haglabyssu.
Howard hótaði ítrekað að myrða feðgana, þó hann væri óvopnaður. „Þú dregur fram byssu fyrir framan börnin mín út af dýnu?“ spurði Howard.
John Miller sagði ítrekað að ef Howard nálgist sig verði hann skotinn. Sem gerðist svo á endanum. Bæði John og Michael virðast hafa skotið Howard.
Box segir að bróðir Howard hefði þá verið búinn að rétta honum hafnaboltakylfu en hann hefði hins vegar ekki reynt að sveifla henni.
Myndböndin hér að neðan gætu vakið óhug áhorfenda.
Samkvæmt Washington Post segir lögreglan að minnst tvö skotanna hafi hæft Howard. Hann lést þegar verið var að flytja hann á sjúkrahús.
Blaðamaður hringdi í John Miller sem vildi ekki tjá sig um málið. Hann sagðist telja það svo að um einkamál á milli sín og Texas væri að ræða.