Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.
Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Í síðustu viku var sjötti þátturinn sýndur í opinni dagskrá en hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.
Þar fyrir neðan má síðan sjá allar uppskriftir þáttarins:
Matarmikil sjávarréttasúpa
- 2 msk olía
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- ½ rautt chili
- 3 stilkar vorlaukur
- 250 lax, roðlaus og beinlaus
- 250 g blandaðir sjávarréttir
- 1 dós kókosmjólk (400 ml)
- 1 L soðið vatn + 1 ½ fiskiteningur
- 1 límóna
- 2 paprikur, appelsínugul og rauð
- Handfylli kóríander
- ½ msk fiskisósa
- 250 g risarækjur, ósoðnar
- ½ - 1 msk karrí
- 1 tsk paprikukrydd
- Cayenne pipar á hnífsoddi
- Salt og pipar, magn eftir smekk
Aðferð:
- Skerið niður lauk, hvítlauk, chili og vorlauk og steikið upp úr olíu þar til laukurinn er orðinn mjúkur í gegn.
- Skerið papriku smátt og bætið út í pottinn, steikið áfram þar til paprikurnar eru mjúkar.
- Saxið niður ferskt kóríander og bætið út í ásamt risarækjum og blönduðum sjávarréttum, Kryddið til með salti, pipar, karrí, paprikukryddi og cayenne pipar.
- Hellið soðnu vatni út í pottinn ásamt fisktening og fiskisósu.
- Leyfið súpunni að malla í 5 – 7 mínútur og hellið síðan kókosmjólkinni saman við, leyfið súpunni að malla í lágmark 20 mínútur en hún er enn betri ef hún fær að malla dágóða stund.
- Bætið laxinum út í pottinn rétt áður en þið berið súpuna fram en það tekur enga stund að elda laxinn.
- Saxið niður kóríander, vorlauk og dreifið yfir súpuna.
MÁNUDAGSFISKURINN Í SPARIBÚNING
Fyrir 3-4
- 800 g þorskhnakkar, roð- og beinlausir
- Olía
- Smjör
- Salt og pipar
- 4 dl mjólk
- 4 dl hveiti
Aðferð:
- Skerið þorskhnakka í jafn stóra bita, setjið hvern bita ofan í mjólkina og því næst ofan í skál með hveiti, salti og pipar.
- Hitið olíu á pönnu og steikið fiskinn í nokkrar mínútur á hvorri hlið (ég myndi segja ca. 3 mínútur).
- Það er mjög mikilvægt að pannan sé mjög heit þegar fiskurinn fer á en annars verður hjúpurinn ekki nógu stökkur. Bætið smjöri út á pönnuna í lokin og hellið vel yfir fiskinn, það er nauðsynlegt að hafa nóg af smjöri!
Blómkálsmauk
- 1 stórt blómkálshöfuð
- 2 msk mjör
- 1 dl rjómi
- Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið blómkálið bita og sjóðið í söltu vatni þar til blómkálið er orðið mjúkt.
- Hellið soðvatninu af og setjið blómkálið í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota, bætið smjöri við og rjóma eftir smekk (magnið fer eftir því hversu þykkt maukið á að vera).
- Kryddið til með salti og pipar.
Lauksmjör
- Smjör
- 1 laukur
Aðferð:
- Afhýðið laukinn og skerið í þunnar sneiðar, setjið í pott ásamt smá smjöri og steikið þar til laukurinn er orðinn mjúkur í gegn. Þá bætið þið enn meiri smjöri saman við sem þið hellið síðan yfir fiskinn þegar hann er klár.
*Ég flysjaði gulrætur, skar í tvennt og sauð í söltu vatni ásamt ferskum aspas í nokkrar mínútur. Það passar fullkomnlega með þessum fiskrétt!
Hörpudiskur á volgu maíssalati
- 2 ferskir maísstönglar í hýðinu
- Salt og pipar
- 4 msk smjör
- 1 hvítlauksrif
- ½ rauð paprika
- 1 lárpera
- 2 tómatar
- 1 límóna
- 1 msk smátt söxuð basilíka
- 1 dl hreinn fetaostur
- 10 stk hörpuskel
- 1 sítróna
Aðferð:
- Skafið maískornin af maískólfinum, hitið smjör á pönnu og steikið kornin þar til þau eru mjúk í gegn. Saxið hvítlauksrif og bætið út á pönnuna, kryddið til með salti og pipar.
- Setjið maískornin til hliðar.
- Skerið papriku, tómata og lárperu afar smátt. Blandið grænmetinu saman við maískornin.
- Saxið niður basilíku og bætið henni einnig saman við maíssalatið.
- Kreistið safann úr einni límónu yfir salatið og hrærið.
- Skolið og þerrið hörpuskelina mjög vel.
- Steikið hörpuskelina á pönnu á háum hita upp úr smjöri í þrjár mínútur á annarri hliðinni og í 2-3 mínútur mínútu á hinni hliðinni. Kryddið með salti og pipar ásamt því að kreista safann úr hálfri sítrónu yfir rétt í lokin.
- Setjið maíssalat á disk og leggið hörpudiskinn yfir.
- Sáldrið hreinum fetaosti yfir salatið áður en þið berið réttinn fram.
KRÆKLINGUR Í HVÍTVÍNSRJÓMASÓSU
- 800 g kræklingur
- 1 laukur
- 3 hvítlauksrif
- ½ rautt chili
- 3 msk smjör
- 2 dl hvítvín
- 2 dl rjómi
- 2 msk smátt söxuð steinselja
- 2 msk smátt saxaður kóríander
- Safi úr einni sítrónu
Aðferð:
- Skolið kræklinginn afar vel, hendið opinni eða skemmdri skel. Þið getið athugað hvort skelin sé lifandi með því að banka aðeins í hana ef hún er smávegis opin, ef hún lokar sér er hún lifandi og þá má borða hana.
- Hitið smjör á pönnu, skerið niður lauk, hvítlauk og chili mjög smátt og steikið upp úr smjörinu þar til laukarnir eru mjúkir í gegn.
- Hellið kræklingum út á pönnuna og steikið í smá stund, eða þar til skeljarnar fara að opna sig.
- Bætið hvítvíni út á pönnuna og leyfið því að sjóða niður, því næst fer síðan rjómin og skvetta af sítrónusafa.
- Kryddið til með salti og pipar.
- Saxið niður ferskan kóríander og steinselju, stráið yfir réttinn. Hrærið öllu vel saman og berið fram á fallegu fati með sítrónubátum.
ROCKY ROAD SÚKKULAÐIBITAR
- 100 g mini sykurpúðar
- 200 g dökkt súkkulaði
- 200 g mjólkursúkkulaði
- 100 g ristaðar pekanhnetur
- 100 g ristaðar möndlur
- 100 g nóa kropp
- 100 g rjóma karamellukúlur
Aðferð:
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði.
- Saxið niður pekanhnetur.
- Setjið sykurpúða,helst litla, nóa kropp, karamellukúlur, ristaðar möndlur og pekanhnetur í pappírsklætt bökuform.
- Hellið súkkulaðinu yfir og inn í kæli þar til súkkulaðið er orðið stíft.
- Skerið súkkulaðikökuna í litla bita og berið fram.