Erlendur karlmaður sem handtekinn var vegna stunguárásar í Þorlákshöfn að kvöldi síðastliðins sunnudags og úrskurðaður í gæsluvarðhald var látinn laus að lokinni yfirheyrslu um klukkan 14 í dag þar sem ekki þótti ástæða til að hafa hann í haldi lengur. Maðurinn hefur neitað sök.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að kona á fimmtugsaldri, sem hann er talinn hafa stungið með hníf, sé útskrifuð af sjúkrahúsi. Hún dvelur nú hjá venslafólki sínu. Rannsókn málsins heldur nú áfram, m.a. með úrvinnslu gagna.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til klukkan 18 í dag og var því látinn laus áður en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn rann út.
Neitar að hafa stungið konu í Þorlákshöfn

Tengdar fréttir

Veitti konu stunguáverka í heimahúsi í Þorlákshöfn
Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í morgun karlmann í gæsluvarðhald vegna stunguárásar í heimahúsi í Þorlákshöfn síðastliðinn sunnudag.