Isavia áætlar að fjárfesta fyrir um 90 milljarða króna í uppbyggingu og stækkun Keflavíkurflugvallar fram til ársins 2022. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurðar Inga Jóhannessonar, við fyrirspurn Píratans Smára McCarthy.
Í svari ráðherra er áætlaður kostnaður sundurliðaður eftir árum:
a. 2019 áætluð fjárfesting 21,5 milljarðar kr.
b. 2020 áætluð fjárfesting 24,3 milljarðar kr.
c. 2021 áætluð fjárfesting 24,9 milljarðar kr.
d. 2022 áætluð fjárfesting 20,7 milljarðar kr.
Í svarinu er þó tekið fram að nauðsynlegt sé að hafa í huga að um sé að ræða áætlun og því verði að gera við hana fyrirvara. „Í fyrsta lagi um að ekki liggur fyrir endanleg staðfesting á að farið verði í þau verkefni sem áætluð hafa verið. Þá er vakin athygli á því að áætlaður kostnaður getur breyst við útboð,“ segir í svarinu.
Sjá einnig: Keflavíkurflugvöllur þrefaldast í stærð
Þá hafi Isavia ekki gengið frá neinum skuldbindingum vegna verklegra framkvæmda sem tengjast uppbyggingaráætluninni.
Yfirvofandi samruni Icelandair og WOW Air mun að öllum líkindum ekki hafa nein áhrif á stækkunaráform Isavia á Keflavíkurflugvelli. Aðstaðan þar er löngu sprungin að mati talsmanns félagsins.
Rúmlega 20 milljarðar á ári í stækkun Keflavíkurflugvallar

Tengdar fréttir

Um 60 þúsund manns gætu unnið við Keflavíkurflugvöll eftir 25 ár
Gert er ráð fyrir gríðarlegri uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli eða fyrir 70 -90 milljarða á næstu fimm til sex árum.

Icelandair: Ófullnægjandi aðstaða á varaflugvöllum stærsta ógn við flugöryggi til og frá landinu
Það er mat forráðamanna lcelandair að smæð flughlaða og skortur á flugstæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum sé stærsta ógn við öryggi flug til og frá íslandi

Keflavíkurflugvöllur þrefaldast í stærð
Spáð er mikilli fjölgun tengifarþega á þessu ári en verulega dregur úr fjölgun erlendra ferðamanna.