Í vikunni fagna aðstandendur hátíðarinnar tuttugu ára afmæli hennar. Af því tilefni hefur verið ákveðið að hátíðin verði með örlítið breyttu sniði í ár til að votta upphafsárum hátíðarinnar virðingu.
Nostalgísk stemning
Á fyrstu árum Iceland Airwaves var áhersla lögð á að gestir hátíðarinnar ættu að geta uppgötvað sem mest af nýrri tónlist með því að rölta á milli smærri tónleikastaða og láta koma sér skemmtilega á óvart.Síðustu ár hefur það færst í aukana að tónleikahaldið hafi færst yfir í tónleika-og ráðstefnuhúsinu Hörpu en sumir hafa saknað hugmyndafræðinnar sem var í forgrunni á upphafsárum hátíðarinnar og þykir heillandi að rölta á milli skemmtistaða og láta koma sér á óvart.
Anna Ásthildur segir að í ár verði aðeins notast við einn sal í Hörpu, Flóa, til að ýta undir hina „nostalgísku stemningu“ á meðal tryggra hátíðargesta Iceland Airwaves á tuttugu ára afmæli hátíðarinnar.
Nýir rekstraraðilar og nýjar áherslur
Þetta er þó ekki það eina sem verður með breyttu sniði í ár því þetta er í fyrsta sinn sem Sena Live sér um rekstur hátíðarinnar en viðburðarfyrirtækið tók yfir rekstur hátíðarinnar í byrjun árs.Anna Ásthildur segir að með nýjum aðilum komi nýjar og ferskar áherslur en bætir þó við að hátíðargestir þurfi ekki að kvíða því að um umfangsmiklar breytingar verði að ræða.

Umfangsminni hliðardagskrá
Það sem helst verði öðruvísi er að svokölluð Off-venue dagskrá, hliðardagskrá hátíðarinnar, verður umfangsminni en undanfarin ár auk þess sem nýir viðburðir innan hátíðarinnar verði kynntir til sögunnar eins og jóga „reif“, sundteiti í Sundhöll Reykjavíkur og hljóðritun tónleika á vínyl plötur.Anna Ásthildur segir að hátíðin hafi ekki breyst neitt svakalega mikið síðan hún hóf göngu sína, aðalmarkmiðið sé enn þá að vera stökkpallur fyrir íslenskt tónlistarfólk, en það sem hafi aftur á móti breyst á þessum tíma sé rekstrarumhverfi tónlistargeirans.
Fleiri tónlistarhátíðir eru haldnar á Íslandi og fólk nálgast tónlist með allt öðrum hætti en það gerði fyrir tveimur áratugum með hjálp veraldarvefsins.
Stífar æfingar fyrir uppskeruhátíð
Fjölmargir erlendir tónlistarblaðamenn sækja hátíðina á hverju ári og gera íslensku tónlistarsenunni góð skil. Anna Ásthildur segir að undanfarið hafi íslenskt tónlistarfólk æft stíft fyrir þessa uppskeruhátíð sem hátíðin sannarlega er.Sjálf segist Anna Ásthildur vera spenntust að sjá Emmsjé gauta, Between Mountains og Ólaf Arnalds, að öðrum ólöstuðum.
Hún mælir með því að tónleikagestir mæti á hátíðina með opnum hug til að uppgötva nýja tónlist. Varhugavert sé að skipuleggja sig um of en bætir við að Iceland Airwaves smáforritið sé gott til að halda utan um „hóflegt“ skipulag.
Ennþá eru til eitthvað af miðum en rúmlega 240 hljómsveitir frá tæplega 40 þjóðlöndum spila á hátíðinni.