Facebook hefur útskýrt hvað varð þess valdandi að gamlir spjallþræðir skutu upp kollinum í hrönnum hjá notendum samfélagsmiðilsins í gærkvöldi.
Talsmaður Facebook sagði í samtali við Mashable að þessi galli hefði verið tilkominn vegna uppfærslu á hugbúnaði fyrirtækisins og er búið að leysa úr vandamálinu.
Spjallþræðirnir gátu verið nokkurra ára gamlir en birtust notendum líkt og þeir væru að fá ný skilaboð.
Sjá einnig: Gamlir spjallþræðir hrella Facebook-notendur
Á vef Mashable segir að þessi galli hafi komið mörgum illa sem fengu allt í einu meldingu um skilaboð frá ástvinum sem höfðu fallið frá eða frá kunningjum sem þeir höfðu ekki spjallað við lengi.
Mashable tekur fram að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem Facebook dragi fram minningar sem sumir vilja helst gleyma eða þykir óþægilegar.
Þegar Facebook kynnti til sögunnar viðmót á samfélagsmiðlinum þar sem það minnti notendur á gamlar Facebook-færslur var fyrirtækið gagnrýnt fyrir að ýta minningum að notendum sem þeir kærðu sig ekki um og þóttu óþægilegar. Brást Facebook við því með því að bjóða notendum upp á möguleika á að breyta þessum gömlu færslu og stjórna því hvaða „minningar“ þeir sjá.
Facebook útskýrir hvers vegna gamlir spjallþræðir skutu upp kollinum
