Milljarður í hlutafé og Jakob ráðinn forstjóri Hörður Ægisson skrifar 19. desember 2018 06:15 Jakob Már Ásmundsson var forstjóri Straums fjárfestingarbanka á árunum 2013 til 2015. Fréttablaðið/Ernir
Hlutafé Kortaþjónustunnar var í gær aukið um 1.050 milljónir króna en samhliða hlutafjáraukningunni var Jakob Már Ásmundsson, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingarbanka, ráðinn forstjóri færsluhirðingarfyrirtækisins. Í samtali við Markaðinn segist Jakob, sem lagði sjálfur til um 80 milljónir króna í hlutafjáraukningunni, hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni. „Kortaþjónustan er sterkt félag með öfluga bakhjarla. Það er mikil gróska í greiðsluþjónustu og fjártæknilausnum og eru vaxtamöguleikar félagsins miklir. Kortaþjónustan hefur allt sem þarf til að sækja fram á þessum markaði og því eru spennandi tímar fram undan,“ segir Jakob. Samkvæmt upplýsingum frá Kortaþjónustunni voru þátttakendur í hlutafjáraukningunni, sem kom til vegna tapreksturs á yfirstandandi rekstrarári fyrirtækisins, núverandi hluthafar ásamt nýjum fjárfestum. Kvika banki er eftir sem áður stærsti einstaki hluthafi félagsins eftir hlutafjáraukninguna með um 40 prósenta eignarhlut. Magnús Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Kviku og nýr stjórnarformaður Kortaþjónustunnar, segir í samtali við Markaðinn að hlutafjáraukningin sýni hið sterka bakland sem Kortaþjónustan býr að. „Það er ánægjulegt að núverandi hluthafar félagsins ásamt nýjum fjárfestum sjái tækifærin sem fólgin eru í félaginu og séu reiðubúnir að styðja við félagið með þessum hætti. Kortaþjónustan hefur tekist á við miklar breytingar á undanförnum misserum í kjölfar gjaldþrots Monarch flugfélagsins undir lok árs 2017,“ segir Magnús. Að sögn Magnúsar er þessum verkefnum nú lokið og félagið stendur á sterkum grunni. „Starfsmenn Kortaþjónustunnar hafa unnið frábært starf við oft á tíðum krefjandi aðstæður. Hlutafjáraukningin mun nýtast vel til að grípa þau fjölmörgu sóknarfæri sem félagið stendur frammi fyrir.“ Jakob, sem var forstjóri Straums fjárfestingarbanka á árunum 2013 til 2015 og lét af störfum sem stjórnarmaður í Arion banka fyrr á árinu, tekur við forstjórastarfinu af Björgvini Skúla Sigurðssyni. Hann lét af störfum hjá Kortaþjónustunni í síðasta mánuði eftir að hafa verið ráðinn til félagsins í ársbyrjun. Sem kunnugt er keypti Kvika banki og hópur einkafjárfesta Kortaþjónustuna á eina krónu í fyrra og lögðu félaginu um leið til nærri 1.500 milljónir í nýtt hlutafé. Kortafyrirtækið stóð frammi fyrir alvarlegum lausafjárvanda í kjölfar greiðslustöðvunar Monarch Airlines en fyrirtækið var á meðal átta fyrirtækja sem sáu um færsluhirðingu fyrir flugfélagið. Rekstrartekjur Kortaþjónustunnar, sem fékk leyfi frá Fjármálaeftirlitinu sem greiðslustofnun á árinu 2012, námu ríflega 4,5 milljörðum á síðasta ári og nær tvöfölduðust frá fyrra ári þegar þær voru tæpir 2,3 milljarðar. Tap félagsins nam hins vegar um 1,6 milljörðum króna. Heildareignir samstæðunnar námu 1.520 milljónum í árslok og eigið fé félagsins var rúmlega 400 milljónir. Áður en ráðist var í hlutafjáraukningu Kortaþjónustunnar voru stærstu hluthafar félagsins, fyrir utan Kviku banka, fjárfestingarfélagið Óskabein með tíu prósenta hlut. Félagið, sem er stór hluthafi í VÍS, er meðal annars í eigu Sigurðar Gísla Björnssonar, eiganda Sæmarks sjávarafurða, Gests Breiðfjörð Gestssonar, eiganda Sparnaðar, og Andra Gunnarssonar, lögmanns og fjárfestis. Þá áttu hjónin Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, sem eru stórir fjárfestar í Kviku og VÍS, um 6,7 prósenta hlut í Kortaþjónustunni í gegnum félagið K2B fjárfestingar. Aðrir helstu hluthafar fyrirtækisins eru félög í eigu Sigurðar Bollasonar fjárfestis, sem fór með tæplega sex prósenta hlut fyrir hlutafjáraukninguna, og bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, í gegnum eignarhaldsfélagið Frigus, áttu liðlega fimm prósenta hlut. Þá var Sigurður Valtýsson, fyrrverandi forstjóri Exista og viðskiptafélagi Bakkavararbræðra, með fimm prósent í gegnum félagið Svalt ehf. og fjárfestingarfélagið Varða Capital, sem er í meirihlutaeigu Jónasar Hagans Guðmundssonar og Gríms Garðarssonar, átti sömuleiðis fimm prósenta hlut.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fokdýr jólagjöf til dætranna reyndist eintóm blekking Neytendur Þau vilja stýra ÁTVR Viðskipti innlent Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Viðskipti innlent Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld Viðskipti innlent Kemur til móts við bílaframleiðendur vegna tolla Viðskipti erlent Ráðinn forstjóri Arctic Fish Viðskipti innlent Býst ekki við að verðbólgan hafi áhrif á vaxtalækkunarferlið Viðskipti innlent Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Viðskipti innlent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Gervigreindin: Stjórnendur framtíðarinnar verði þjálfarar Atvinnulíf Fleiri fréttir Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld Þau vilja stýra ÁTVR Býst ekki við að verðbólgan hafi áhrif á vaxtalækkunarferlið Um þrjátíu prósent hafa miklar áhyggjur af áhrifum tolla á Ísland Lauf Cycles lýkur tæplega 500 milljóna króna fjármögnun Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Ráðinn forstjóri Arctic Fish Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Aðalgeir frá Lucinity til Símans Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Sjá meira