Borgin Hudaydah er ein helsta lífæð landsmanna en megnið af hjálpargögnum sem koma til Jemen fara um höfnina þar.
Stríðið í Jemen hefur geisað í um fjögur ár og hafa landsmenn glímt við hungursneyð og látlaus átök.
Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, fagnaði fréttunum sem bárust í dag og sagðist vona að það væri upphafið að því að binda enda á stríðsátökin í landinu.
Vel á sjöunda þúsund manna hið minnsta hafa látið lífið í átökunum á síðustu árum og um 10 þúsund særst. Mörg þúsund manns til viðbótar hafa látið lífið vegna vannæringar og sjúkdóma sem hefði hægt að koma í veg fyrir.
Fjögurra ára átök
Átök í landinu hófust í byrjun árs 2015 þegar Hútar náðu stjórn á stórum landsvæðum í vesturhluta landsins sem neyddi forsetann Abdrabbuh Mansour Hadi til að flýja land.Sádar, Sameinuðu arabísku furstadæmin og sjö önnur arabaríki hafa stutt við bakið á stjórnvöldum í landinu, en þau líta á Húta sem nána bandamenn íranskra stjórnvalda.