Forsetinn hætti við að fara í frí í einkaklúbb sinn í Flórída um hátíðirnar og er þess í stað í Hvíta húsinu.
Trump hefur þó ekki rætt við leiðtoga Demókrataflokksins frá því hann hitti þau Nancy Pelosi og Chuck Schumer á fundi í Hvíta húsinu þann ellefta desember. Sá fundur þótti ekki góður fyrir forsetann þar sem hann sagðist fagna því að loka hluta alríkisstofnanna Bandaríkjanna og sagðist ætla að taka sökina fyrir slíkt.
Nú hefur hann þó skipt um skoðun og í tístum kennir hann Demókrötum ítrekað um deiluna. Hann sagði í gær að Demókratar hefðu meiri áhuga á því að rannsaka sig en að leysa deiluna.
Aðstoðarmenn Trump telja það þó jákvætt að hann sé einungis að tjá sig um deiluna á Twitter. Það stafi minni hætta af því en blaðamannafundum og annars konar yfirlýsingum. Í millitíðinni hafa einhverjir starfsmenn Trump rætt við Demókrata.
Fyrir rúmri viku sögðu Demókratar að Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, hefði lagt til að 2,5 milljörðum yrði varið til byggingar múrsins en því var hafnað. Chuck Schumer sagði það óásættanlegt og að á sama tíma væri alfarið óljóst að Trump sjálfur myndi samþykkja það.
Undir þrýstingi frá stuðningsmönnum
Trump er undir miklum þrýstingi frá sínum dyggustu stuðningsmönnum um að standa við kosningaloforð sitt og reisa múrinn, þó hann hafi upprunalega heitið því að Mexíkó myndi borga fyrir múrinn. Repúblikanar og Demókratar höfðu fyrir jól komist að samkomulagi um fjárlög til 8. febrúar og voru þau samþykkt í öldungadeildinni. Trump skipti þó um skoðun eftir að hann ræddi við stuðningsmenn sína á fulltrúadeildinni og neitaði að skrifa undir fjárlögin.Þar var engu fé veitt til byggingu múrsins og var markmiðið einungis að koma í veg fyrir lokun ríkisstofnana.
Undanfarin tvö ár hafa Repúblikanar þó stjórnað báðum deildum Bandaríkjaþings en án þess þó að vera með nægjanlegan meirihluta á öldungadeildinni til að koma fjárlögum þar í gegn einhliða.
Nú eru einungis nokkrir dagar í að Demókratar taki við stjórn á fulltrúadeildinni og því mun Trump vera í mun verri stöðu en áður varðandi byggingu múrsins og fjárveitingar til þessa.
Talsmaður Nancy Pelosi segir Demókrata sameinaða gegn byggingu múrsins og að þau muni ekki svo mikið sem íhuga tilboð frá Repúblikönum, án þess að Trump lýsi opinberlega yfir stuðningi við það. Hann hafi svo oft skipt um skoðun.
Sjálf hefur Pelosi heitið því að leggja fram frumvarp um leið og hún tekur við stjórn fulltrúadeildarinnar í næstu viku og því verði ætlað að tryggja opnun alríkisstofnanna sem hefur verið lokað.