
Í tilkynningu frá stjórninni vegna málsins, sem Bryndís sjálf skrifar undir, segir að umsækjendur beri sjálfir ábyrgð á því að umsóknir skili sér. Að þessu leyti sé þetta sambærilegt öðrum sjóðum tengdum vísindum og listum í umsjá Rannís.
„Vegna umræðu sem fram hefur farið í kjölfar úthlutunar úr Launasjóði listamanna vill stjórn sjóðsins taka fram að rafrænar umsóknir eru ekki taldar lögformlega marktækar fyrr en þær hafa verið sendar til sjóðsins með fullnægjandi hætti. Umsækjendur fá sjálfkrafa afrit af umsókn sinni eftir að hún hefur verið send inn og bera ábyrgð á því að umsókn hafi skilað sér. Aðeins fullkláraðar og innsendar umsóknir eru teknar til meðferðar hjá úthlutunarnefndum.“
Í tilkynningu er jafnframt vísað í 6. grein reglugerðar um listamannalaun. Þar segir að við veitingu starfslauna og styrkja úr öllum sjóðum skuli úthlutunarnefndir gæta þess vandlega að allar umsóknir fái sanngjarna umfjöllun og ákvarðanir séu ávallt reistar á faglegum sjónarmiðum.Þá ítrekar stjórnin fullt traust til úthlutunarnefnda Launasjóðs listamanna.