Í greinargerðinni er skoðað hvort seinka eigi klukkunni og hafa þrír valkostir verið settir fram, sem vinna á úr í samráði við almenning.
Almenningi, atvinnulífi og stjórnsýslu hefur því verið boðið að taka þátt í samráði og leggja fram sín sjónarmið um „stöðumat, framtíðarsýn og áhrif mögulegra breytinga“.
Í kjölfarið verður unnið úr ábendingunum og stefna mótuð af hálfu stjórnvalda en samráðstími verður tveir mánuðir.
Eftirfarandi valkostir voru settir fram í greinargerðinni:
- Óbreytt staða, klukkan er áfram 1 klst. fljótari en ef miðað væri við hnattstöðu, en með fræðslu er fólk hvatt til að ganga fyrr til náða.
- Klukkunni seinkað um 1 klst. frá því sem nú er, í samræmi við hnattstöðu landsins (dæmi: kl. 11:00 nú, verður kl. 10:00 eftir breytingu).
- Klukkan áfram óbreytt en skólar og jafnvel fyrirtæki og stofnanir hefja starfsemi seinna á morgnana.

Hér að geta lesendur aftur á móti kosið um þessa þrjá möguleika.