Henry var afdráttarlaus í greiningu sinni á endurkomu Gunnars Braga og Bergþórs í þættinum Silfrinu á RÚV í morgun en þingmennirnir sneru aftur á þing í vikunni með miklum látum.
Grundvallarspurningar um lýðræði
Henry sagði það afar eftirtektarvert hvaða ástæður Gunnar Bragi og Bergþór hefðu gefið fyrir ákvörðun sinni um að koma aftur til starfa. Þeir hafa báðir sagst gegna skyldu gagnvart kjósendum sínum og því ákveðið að mæta til vinnu á þinginu en Henry setti spurningamerki við þær röksemdafærslur.„Hvernig þeir lýsa því að þeir hafi enn þá trúverðugleika frá sínum kjósendum, sínum hópum. Að það hafi einhverjir hringt í þá, og svo framvegis, að þeir hafi talað við sitt fólk. Þetta eru bara grundvallarspurningar um lýðræði. Þurfa alþingismenn bara að vera trúverðugir í augum sinna kjósenda, sinna vina, eða þurfa þeir að vera trúverðugir í augum almennings?“ spurði Henry.

Eins og rekaviðardrumbar í öldurótinu
Hann sagði þá Gunnar Braga og Bergþór óhjákvæmilega hafa tapað trúverðugleika sínum.„Ég held að í þessu tilviki sé það þannig að þessir tveir þingmenn, svo við tölum um þá því þeir hafa verið í fréttum í vikunni, ég held að þeir hafi tapað sínum trúverðugleika. Það er ekkert hægt að komast fram hjá því, ég held við séum öll sammála um það. Þeir fá hann ekki auðveldlega aftur og ég held þeir séu ekki að öðlast hann aftur með sínum viðbrögðum í vikunni.“
Þá taldi Henry að erfitt yrði fyrir umrædda þingmenn að starfa áfram inni á þingi þar sem þeir yrðu líklega alltaf litaðir Klaustursmálinu.
„Ég er voða hræddur um að, af því að ég er hræddur um að þeir hafi tapað sínum trúverðugleika, að ef þeir ætla að sitja inni á alþingi núna að þá verði þeir eins og einhverjir rekaviðardrumbar sem skolast til í öldurótinu næstu ár.“
„Kjörnir fulltrúar geta ekki haft þessar skoðanir“
Auk þess lýsti hann yfir áhyggjum af skilningsleysinu sem virtist loða við viðbrögð Miðflokksmanna í málinu. Þingmennirnir hafa stillt sér upp sem fórnarlömbum og vísað til þess að þeir hafi verið teknir ólöglega upp á Klaustri í nóvember.„Það er líka lykilatriði í þessu sem ég held að megi ekki gleymast. Það er að kjörnir fulltrúar geta ekki haft þessar skoðanir. Þeir geta ekki leyft sér þetta. Þetta er bara ekki í boði, hvort sem þetta hefði farið út eða ekki,“ sagði Henry.
„Þetta skilningsleysi sem kemur svo í ljós í öllum viðbrögðum þeirra, það er það sem ég hef mestar áhyggjur af í þessu.“