
Plastið og heilsan
Helst er verið að nefna þalöt og BPA sem þau efni sem eru talin skaðleg og geta komist í snertingu við líkamann í gegnum húð, með innöndun og einnig inntöku svo leiðirnar eru margar og talið er líklegt að við verðum fyrir samtímaáreiti í raun. Umræðan um áhrif þessara efna er enn að hluta til þess eðlis að erfitt er að staðhæfa nákvæmlega eða magnsetja áhrif og toxísk mörk. Ljóst er að efnin hafa áhrif á efnaskiptakerfi, hormónastarfsemi, hafa áhrif á fóstur og svo framvegis. Nokkrar rannsóknir hafa verið að sýna fram á tengingu við frjósemi karla, sáðfrumuframleiðslu og magn testósteróns.
Þessu til viðbótar er talið að áhrif á lifur og starfsemi hennar, bris og þar með insúlín séu einhver og geti haft neikvæð áhrif á þróun sykursýki. Hjarta- og æðasjúkdómar eru einnig nefndir sem og breytingar sem menn hafa séð í heilavef og tengjast minnisstöðvum hans. Erfitt er eins og kom fram að tengja saman öll púslin og má segja að rannsóknir á þessu sviði séu enn aðeins of skammt á veg komnar til að fullyrða nákvæmlega um orsakasamhengi og öryggismörk sem er mikilvægt í umræðu sem þessari. Hagsmunatengsl eru augljós og plast er allt um kring í okkar daglega lífi og neyslumynstri.
Það þarf hins vegar ekki að horfa langt til að átta sig á því að við erum þegar búin að valda töluverðum skaða á umhverfinu í kringum okkur og þá líklega heilsu okkar í leiðinni þó það sé ekki eins sjáanlegt. Mikilvægt verður að fylgjast með framleiðslu og innihaldi í tengslum við plastiðnað og að reyna eftir fremsta megni að skýra orsakasamhengi. Ef þau verða augljós þá er engin önnur leið en að reyna að finna aðrar nálganir en plast og plastefni eða íblöndunarefni þeirra. Grænni leiðir verða lykilatriði hér og að breyta notkun plastefna almennt en ekki síst fyrir heilsu okkar og líðan.
Mest vitum við eins og fram kom um þau efni sem notuð eru í iðnaði, míkróplast er svo önnur umræða þar sem litlar agnir safnast saman og geta með þeim hætti haft áhrif á líkamann með ýmsum hætti. Míkróplast er aðskotahlutur í líkamanum og sem slíkur veldur það bólgusvari og ónæmiskerfið bregst við því. Þá dregur plast að sér ýmis efni og getur bundið þau, efni sem geta verið skaðleg eða eitruð fyrir líkamann líkt og kvikasilfur, díoxín og önnur efni sem við vitum í dag að eru krabbameinsvaldandi. Það er því að mörgu að huga en í dag er líklega besta leiðin, sem einstaklingar geta farið til að verja sig, að vera meðvitaður um þetta og breyta neyslumynstri sínu.
Skoðun

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Og hvað svo?
Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar

Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu
Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Sannleikurinn í tengdamömmumálinu
Ólöf Björnsdóttir skrifar

Hann breytti öllu – og gerði það með háði
Jónas Sen skrifar

Ekki fylla höfnina af grjóti
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Lengri útivistartími barna
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það?
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að því að rjúfa vítahring kynslóðabundinna afbrota
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Flugan í ídýfunni
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar

Að mennta til lífs, ekki prófa
Sandra Sigurðardóttir skrifar

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar