Gunnar Smári Egilsson, sem kom að stofnun Fréttablaðsins og er einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, hvetur fólk til þess að afþakka blaðið sem hann ritstýrði um árabil.
Þetta kemur fram í skrifum hans á Miðjunni en tilefni skrifa Gunnars Smára er forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag.
Þar var fjallað um kjaradeilu Verkalýðsfélags Akraness, VR, Eflingar og Verkalýðsfélags Grindavíkur við Samtök atvinnulífsins undir fyrirsögninni Brestur í blokkinni?
Haft var heimildarmönnum blaðsins að félögin fjögur hefðu of ólíka hagsmuni til að geta klárað viðræðurnar í samfloti en Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, vísaði þessu algjörlega á bug í samtali við blaðið.
Gunnar Smári segir að fólk eigi ekki að taka mark á fréttinni „í ljósi sextíu leiðara Fréttablaðsins gegn kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar,“ eins og hann orðar það en Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur meðal annars gagnrýnt leiðaraskrif Fréttablaðsins og sagt að þar birtist „sjúk og viðbjóðsleg umræða.“
Gunnar Smári segir að forsíðufréttin í dag sé „merki þess að Fréttablaðið notað með öllum tiltækum ráðum gegn baráttu almennings fyrir skaplegum kjörum og einhverju réttlæti í innan alræðis auðvaldsins. Skammarlegt blað Fréttablaðið núorðið, þetta fyrrum alþýðlega blað.
Það eru margir mánuðir síðan ég afþakkaði að fá þetta drasl inn á mitt heimili. Og tók ég þó þátt í að stofna blaðið og fylgdi því þar til það var orðið stórt og glæsilegt, með sterkustu ritstjórn sem hér hefur starfað.
En blaðið sem gefið er út í dag minnir mig á engan hátt á þann tíma, bara ekki neitt. Ég hvet fólk til að afþakka Fréttablaðið, til hvers ætti fólk að opna heimili sitt fyrir svívirðilegum áróðri gegn lífsbaráttu sinni?“
Gunnar Smári hvetur fólk til þess að afþakka Fréttablaðið

Tengdar fréttir

Ritstjóri Stundarinnar kemur ritstjóra Markaðarins til varnar
Segir Jón Trausti að gera verði greinarmun á því að fólk sé í hagsmunaárekstri og því að það hafi skoðanir sem stangast á við okkar, eða þegar okkur þyki það vega ómaklega að okkur.

Formaður Eflingar: „Megi þá helvítis byltingin lifa“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lætur Hörð Ægisson, ritstjóra Markaðarins, heyra það í ítarlegum pistli sem hún skrifaði.

Kröfugerð Starfsgreinasambandsins felld inn í stefnu Sósíalistaflokksins
Með þessu segist Sósíalistaflokkurinn gera kröfur yfir 100 þúsund Íslendinga að sínum.