
Smánarblettur
Síðustu daga hafa fréttir af aðbúnaði rúmenskra verkamanna sem starfa fyrir íslenska starfsmannaleigu verið fyrirferðarmiklar í fréttum. Reyndar er þessi fréttaflutningur framhald af umfjöllun sem var í fréttaskýringarþættinum Kveik fyrir nokkrum mánuðum. Það vekur mjög auðveldlega upp þá spurningu af hverju ekki var brugðist við af hörku strax eftir sýningu þess þáttar. Einhverjir sofnuðu greinilega á verðinum.
Það er ljóst að á vinnumarkaði þrífast einstaklingar sem hafa komist upp með það að haga sér eins og þrælaeigendur. Þeir ráða til sín erlenda verkamenn, sópa þeim saman inn í kytrur, hirða af þeim háa húsaleigu og borga þeim laun undir lágmarkstaxta, ef þeir á annað borð hafa fyrir því að greiða þeim laun. Vart þarf að hafa mörg orð um einstaklinga sem haga sér á þennan hátt. Þeir eru einfaldlega siðleysingjar. Þessa menn á að draga fram í dagsljósið og kalla þá til ábyrgðar, það á ekki að leyfa þeim að forða sér í skjól. Mannvonska þeirra er hyldjúp. Enginn á að fá að koma fram við aðra eins og þeir hafa komið fram við starfsmenn sína. Þeir eru að stunda glæpastarfsemi og glæpamenn eiga að gjalda fyrir glæpi sína.
Í siðuðu samfélagi á þrælahald af þessu tagi ekki að líðast. Samt hefur það þrifist of lengi. Þegar upp kemst um mál af þessu tagi þá er ekki nóg að rekin séu upp undrunaróp, það þarf að bregðast við og hefja rannsókn sem á að taka stuttan tíma og skila raunverulegum aðgerðum. Það á ekki að líðast að einstaklingar sem haga sér eins og þrælaeigendur geti haldið áfram að brjóta á erlendum verkamönnum vikum og mánuðum saman eftir að framferði þeirra hefur verið dregið fram í dagsljósið. Þetta eru einstaklingar sem leggja sig sérstaklega fram við að blekkja og svíkja og leika á kerfið og treysta um leið á að embættismenn sem ættu að sjá við þeim séu bæði svifaseinir og latir. Því miður virðist slíkt of oft vera raunin. Ef ekki væri fyrir framtak fjölmiðla hefði lítið sem ekkert gerst í málum rúmensku verkamannanna sem brotið var svo skelfilega á. Þeir væru enn í vonlausri stöðu með enga útgönguleið.
Fjölmargir hafa brugðist í þessu máli. Vonandi sjá þeir hinir sömu sér fært að líta í eigin barm og kannast við mistök sín. Hinn nöturlegi sannleikur er sá að þrælahald hefur verið látið viðgangast. Það er smánarblettur á samfélagi okkar.
Skoðun

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar