Skoðun

Spekileki

Logi Einarsson skrifar
Stúdentar hafa lengi barist fyrir betra námslánakerfi og kjörum á Íslandi en undanfarið hefur aukinn hiti færst í umræðuna. Hann er tilkominn vegna aðgerðarleysis stjórnvalda. Í skugga aðgerðarleysis hefur dregið úr jöfnunarhlutverki lánasjóðsins með alvarlegum afleiðingum. Háskólanemar búa margir við mun krappari kjör en flestir aðrir samfélagshópar.

Birtingarmynd þessa er ekki síður alvarleg fyrir íslenskt samfélag og mikið umhugsunarefni fyrir stjórnvöld. Ekki síst þegar við siglum inn í miklar samfélags- og tæknibreytingar. Við þurfum á vel menntuðu ungu fólki að halda til að tryggja að íslenskt atvinnulíf verði áfram samkeppnishæft við aðrar þjóðir.

Í dag getur ungt fólk valið hvar á hnettinum það starfar og því þarf að skapa því aðstæður sem gerir það eftirsóknarvert búa á Íslandi. Eitt af því sem skiptir höfuðmáli er að tryggja að ungt fólk sem sækir sér menntun erlendis snúi aftur heim.

Það er því áhyggjuefni, að í fyrsta skipti horfumst við nú í augu við að fleiri íslenskir háskólanemar, sem kjósa að læra á Norðurlöndunum, velja frekar að taka lán hjá erlendum sjóðum en LÍN. Þetta er grafalvarleg þróun.

Meirihluti íslenskra nemenda erlendis sér nefnilega ekki fram á að geta framfleytt sér á harkalegu framfærsluviðmiði íslenska sjóðsins og þeir eiga ekki að þurfa að vinna með námi. Erlendir námslánasjóðir setja síðan sumir þau skilyrði gegn láni að nemandi starfi í námslandinu einhver ár eftir útskrift.

Við erum þannig að búa til spekileka með meingölluðu lánasjóðskerfi. Það skaðar samkeppnishæfi íslensks atvinnulífs, því bráðnauðsynleg þekking skilar sér ekki heim, auk þess sem það gerir það síður eftirsóknarvert, jafnvel illviðráðanlegt fyrir marga, að stunda háskólanám yfirhöfuð.

Sýnum stúdentum samstöðu, tryggjum hærri framfærslu, sanngjarnara frítekjumark og bætum fyrirkomulag lána strax. Tökum síðan markviss skref í átt að norrænu styrkjakerfi sem tryggir lífsgæði háskólanema og ýtir undir jafnrétti til náms. Þó auðvitað sé alltaf erfitt að spá fyrir um síhvikula framtíð er öruggt að það er fjárfesting sem mun margborga sig.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×