Keppti í fótbolta og frjálsum um verslunarmannahelgar
Guðrún upplifði eins og fyrr segir sína fyrstu Þjóðhátíð á síðasta ári, þá sem skemmtikraftur. Fram að því segist Guðrún hafa stundað unglingalandsmótin um verslunarmannahelgina eða ferðast um landið með fjölskyldu sinni. „Á unglingsárunum var ég alltaf að keppa í fótbolta og frjálsum á Unglingalandsmótum um verslunarmannahelgina, svo hafa þetta aðallega verið ferðalög með fjölskyldunni eða Innipúkinn í bænum. Þjóðhátíð í fyrra var í raun í fyrsta sinn sem ég upplifði alvöru skrall um þessa helgi. Það var mjög mikil upplifun fyrir mig og verður örugglega bara skemmtilegra núna.“
Tilnefnd til Nordic Music Prize
Plata GDRN, Hvað ef, er tilnefnd til Nordic Music Prize sem plata ársins en verðlaunin verða afhent í Ósló undir lok mánaðar. Tvær plötur íslensks tónlistarfólks eru tilnefndar en plata tónlistarkonunnar GYDA, Gyðu Valtýsdóttur, Evolution, hlaut einnig tilnefningu. Íslenska tónlistarfólkið keppir við ekki minni nöfn en Robyn og Jenny Wilson frá Svíþjóð, auk tónlistarfólks frá hinum Norðurlöndunum. „Það var eiginlega smá sjokk að frétta af þessari tilnefningu og auðvitað mikill heiður. Ég fer með flugi út á afhendinguna en ég var aðeins að gúgla hátíðina og sé að þetta er alveg „smóking fínt“,“ segir Guðrún. Þó hún sé ekki búin að ákveða hverju hún klæðist á stóra kvöldinu segir hún það „allt í vinnslu“.Forsala á Þjóðhátíð hefst í dag, miðvikudag, en fyrstu nöfnin sem tilkynnt er að komi fram á hátíðinni eru auk GDRN Herra Hnetusmjör, tónlistarmaðurinn Huginn og raftónlistartvíeykið ClubDub. Fleiri tónlistarmenn verða tilkynntir á næstu vikum en aðstandendur lofa stærstu Þjóðhátíð til þessa.