
Ísland skapar ekki nógu áhugaverð störf
Þetta er spegilmynd af vandanum sem við er að etja. Íslenskt hagkerfi byggir í æ ríkara mæli á náttúruauðlindum í stað hugvits í kjölfar uppgangs í ferðaþjónustu. Stoðir hagkerfisins eru ferðamennska, sjávarútvegur og orkufrekur iðnaður.
Hagkerfið skapar einfaldlega ekki nægilega mikið af áhugaverðum störfum sem byggja á hugviti og státa af mikilli framleiðni. Afleiðingin mun bitna á landsmönnum öllum, hagvöxtur og þar með lífsgæði munu ekki halda í við nágrannaþjóðir á 21. öldinni. Það þarf að skapa frjóan jarðveg fyrir þekkingariðnað til að leggja grunn að áhugaverðum störfum. Öflugt menntakerfi og góð umgjörð um atvinnulífið er lykillinn. Því miður eru skattar með því hæsta sem þekkist sem hlutfall af landsframleiðslu og skólar útskrifa of fáa tæknimenntaða.
Það verður ekki fram hjá því litið að miklar sveiflur krónunnar grafa undan uppbyggingu þekkingariðnaðar sem krefst þolinmóðra fjárfesta. Hin Norðurlöndin hafa glímt við álíka vanda og Ísland varðandi verðbólgu og ósætti á vinnumarkaði. Þeim fór hins vegar að farnast vel um leið og leikreglur peningastefnunnar urðu skýrar, segir í skýrslunni Framtíð íslenskrar peningastefnu.
Þetta er í mikilvæg lexía í ljósi harðra kjaraviðræðna. Á Norðurlöndunum þekkist ekki að hækka laun umfram svigrúm útflutningsgreina enda er það ekki himnasending heldur böl sem leiðir til verðbólgu og gengisfalls. Með þeim hætti er vegið að rekstrargrundvelli fyrirtækja, sem er kostnaðarsamt fyrir samfélagið því þau þurfa að sleikja sárin í stað þess að sækja fram, og erfitt reynist að skapa þekkingarstörf. Ekkert vinnst en miklu er fórnað.
Þeir sem vilja leysa gengisvandann með því að taka upp aðra mynt ættu að rifja upp skrif dr. Róberts Mundell, föður evrunnar, þess efnis að eitt af þremur skilyrðum myntbandalags er að atvinnurekendur geti lækkað laun í niðursveiflum. Annars er kreppa og atvinnuleysi á næsta leiti. Verkalýðshreyfingin þyrfti að taka róttækum breytingum til að samþykkja það.
Skoðun

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar