
Lýðheilsuógn
Rangar upplýsingar hafa fylgt bólusetningum frá upphafi, og byggjast oftar en ekki á misskilningi eða fáfræði. Aftur á móti eru falskar upplýsingar þær sem ætlað er að sá fræjum efasemda í hugum fólks; sjálf lýðheilsan er gerð að fleyg til að reka milli mismunandi hópa til að auka á sundrung og grafa undan samheldni um þann sáttmála sem almenningur og yfirvöld hafa gert til að halda lífshættulegum og óþörfum sjúkdómum í skefjum.
Sáttmáli þessi byggist á trausti. Almenningur treystir á skilvirkt og ódýrt bóluefni sem aðgengilegt er öllum, meðan yfirvöld treysta almenningi til að nýta sér bóluefnið. Þegar rangar og falskar upplýsingar um bólusetningar fá að grassera er þessu trausti ógnað.
Mislingafaraldurinn sem nú geisar víða um heim – faraldur sem kostaði 110 þúsund manns lífið árið 2017 – virðist að stórum hluta eiga uppruna sinn að rekja til áróðurs gegn bólusetningum. Þetta er áróður sem fengið hefur að dafna óáreittur á samfélagsmiðlum, þeim vettvangi sem eitt sinn var ætlað að færa okkur nær hvert öðru en er nú lítið annað en samfelldur og ærandi kliður upplýsinga sem birtar eru án ritstjórnar og ábyrgðar.
Blessunarlega eru fáar vísbendingar um að þessi áróður hafi haft áhrif á afstöðu þeirra sem hér búa. Raunar er það svo að nánast allir sem spurðir voru um bólusetningarskyldu í könnun, sem Fréttablaðið greinir frá í dag, telja að bólusetningar verði leiddar í lög. Þó að þátttaka í bólusetningum mætti sannarlega vera betri, þá er fátt sem gefur til kynna að samfélagssáttamála okkar um hjarðónæmi sé ógnað að einhverju ráði. En þar með er ekki sagt að slíkt geti ekki gerst.
Jonathan Swift sagði eitt sinn að lygin fljúgi hratt, og að sannleikurinn komi jafnan haltrandi á eftir henni, og það er mikið til í þessum orðum. Ákveðinn hópur samfélagsins mun ávallt afneita traustum og óyggjandi vísbendingum og þess í stað leita staðfestingar á fyrirfram mótuðum hugmyndum. Því ætti það að vera algjört forgangsatriði að stórefla fræðslu um bólusetningar og allt sem þeim tengist til að fyrirbyggja það að skaðlegur áróður eins og sá sem nú veldur hörmungum víða um heim fái að skjóta lífseigum rótum hér á landi. Þetta útheimtir mikla frumkvæðisvinnu af hálfu heilbrigðisyfirvalda og þeirra sem getu og þekkingu hafa til að miðla réttum og nauðsynlegum upplýsingum til almennings. En ávinningurinn verður alltaf sá að renna styrkari stoðum undir jákvætt viðhorf til bólusetninga.
Skoðun

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar