Björgunarsveitarmenn, sem sendir voru út til aðstoðar slösuðum göngumanni í Botnsdal í botni Hvalfjarðar, hafa lagt af stað til baka ásamt hinum slasaða.
Hægt var að hlúa að göngumanninum á slysstað og gengur hann nú ásamt björgunarsveitarmönnum um eins og hálfs kílómetra leið. Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar er útlit fyrir að meiðslin séu minni en talið var í fyrstu. Göngumaðurinn var í fámennum hópi og hafði slasast á fæti.
Sjúkraflutningafólk bíður eftir manninn við veginn og mun meta stöðuna og ákvarða hvort hann verði sendur til frekari skoðunar á sjúkrahús.
Búið að koma slasaða göngumanninum til aðstoðar

Tengdar fréttir

Útkall vegna slasaðs göngumanns í Botnsdal
Björgunarsveitir á Akranesi, Borgarnesi og höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út klukkan 13:30 vegna slasaðs göngumanns í Hvalfirði.