Hvalfjarðarsveit
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Hætta við skerðingar norðan- og austantil Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að ekki muni koma til þeirra skerðinga á afhendingu raforku um áramótin sem reiknað hafði verið með. Viðskipti innlent 11.12.2024 14:06
Veitir leyfi til veiða á langreyði og hrefnu Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.. Leyfin eru veitt til fimm ára. Innlent 5.12.2024 15:29
Skert athygli þegar ekið var inn á öfugan vegarhelming Aðdragandi banaslyss á Vesturlandsvegi til móts við Skipanes í desember í fyrra var sá að Toyota Yaris bifreið var ekið yfir á öfugan vegarhelming og framan á Volvo fólksbíl úr gagnstæðri átt. 66 ára kona sem ók Toyota bifreiðinni lést af völdum árekstursins og tveir í hinum bílnum slösuðust alvarlega. Innlent 30.10.2024 11:07
Biluð rúta stoppaði umferð í göngunum Löng bílaröð myndaðist við Hvalfjarðargöngin á tíunda tímanum í morgun vegna bilaðrar rútu inni í göngunum. Opnað var fyrir umferð upp úr klukkan hálf ellefu. Innlent 18.10.2024 10:50
Hvalir, lög og líf: Ísland á siðferðilegum krossgötum Sumarið hefur verið friðsamt í Hvalfirði. Laus við harmagrát hvalamæðra sem syrgja ófædda kálfa sína, laust við blóð sem litar sjóinn rauðan, í firði sem kenndur er við skepnur sem veiddar hafa verið á hrottalegan máta í margar aldir. Skoðun 12.9.2024 10:02
Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Einn var fluttur á sjúkrahús í kvöld eftir að bát hvolfdi í Hvalfirði. Tilkynning barst um málið á áttunda tímanum og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, lögregla, áhöfn á sjómælingaskipinu Baldri og sjóbjörgunarsveitir kallaðar út. Innlent 12.8.2024 21:14
Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Vísindarannsóknir eru hafnar í Hvalfirði með það fyrir augum að kanna möguleika til kolefnisförgunar. Markmiðið er ekki að græða pening með sölu kolefniseininga eða öðru, heldur að skapa þekkingu sem gæti nýst til að milda áhrif loftslagsbreytinga. Í stuttu máli felst aðferðin sem er til skoðunar í því að kanna hvort hægt sé að flýta náttúrulegu ferli kolefnisbindingar í hafi með því að auka svokallaða basavirkni sjávar. Innlent 28.7.2024 22:01
Skólabílstjóri og hestamálari úr Hvalfjarðarsveit Skólabílstjóri í Hvalfjarðarsveit hefur það sem tómstundagaman að mála myndir af íslenskum hestum og tekst það verk einstaklega vel. Bílstjórinn er ekki menntaður í málaralistinni, hæfileikarnir eru bara til staðar. Innlent 22.7.2024 20:05
Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Hjón sem áður bjuggu í Reykjavík sjá ekki eftir þeirri ákvörðun að gerast ferðaþjónustubændur í sveitinni. Um þessar mundir eru þau að byggja fleiri smáhýsi fyrir gesti sína. Hjónin Þórlaug og Grétar á Móum í Hvalfjarðarsveit voru í óða önn ásamt vinnufólki þegar fréttastofu bar að garði á dögunum. Innlent 6.7.2024 20:00
Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld gagnvart Kristni Jens Sigurþórssyni, fyrrverandi presti í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, en prestakallið var lagt niður árið 2019. Í kjölfarið bauð biskup Kristni að taka við nýju embætti sem hann þáði nokkru síðar, en svo tilkynnti Þjóðkrikjan að það boð hefði fallið niður. Innlent 4.7.2024 17:25
Fjórir fluttir á slysadeild eftir árekstur í Hvalfjarðargöngum Tveggja bíla árekstur varð í Hvalfjarðargöngum um klukkan eitt. Fjórir slösuðust og voru fluttir á slysadeild í Reykjavík, en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er enginn þeirra alvarlega slasaður. Innlent 21.6.2024 15:00
Einn ofn úti og grunur um reykeitrun Eldur kviknaði í kísilveri Elkem á Grundartanga í gærkvöldi þegar málmur flæddi upp úr einum þriggja ljósbogaofna fyrirtækisins. Ofninum hefur verið lokað og einn starfsmaður leitaði á spítala vegna gruns um reykeitrun. Betur fór en á horfist og allir komust heilir heim. Innlent 19.6.2024 16:02
Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur nærri Hvalfjarðargöngum Einn var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsi á Akranesi eftir árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Vesturlandsvegar og Hvalfjarðarvegar nú síðdegis. Fimm manns voru í bílunum sem eru sagðir mikið skemmdir. Innlent 7.6.2024 17:32
Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Síðasti svartþrastarunginn í hreiðri við heimili Elmars Snorrasonar húsasmiðs í Hvalfjarðarsveit er horfinn á braut. Elmar hefur undanfarnar tvær vikur boðið upp á beina útsendingu frá hreiðrinu og hefur tekið saman stærstu augnablikin í myndböndum sem horfa má á hér fyrir neðan. Lífið 30.5.2024 10:52
80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Þegar mest var voru um 60 þúsund hermenn á Íslandi árin 1942 til 1945 og þar af voru um 28 þúsund hermenn í Hvalfirði í herskipum, sem lágu þar. Um þetta er fjallað á sýningu í Hernámssetrinu í Hvalfirði, sem hefur notið mikillar vinsældar hjá “Gaua litla” eins og hann er alltaf kallaður. Innlent 20.5.2024 20:03
Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Elmar Snorrason, húsasmiður og veðuráhugamaður, setti nýlega upp myndavél sem horfir yfir hreiður svartþrastapars. Hreiðrið er við heimili hans í Hvalfjarðarsveit. Fjórir ungar komu úr eggjunum í fyrradag, 14. maí. Lífið 16.5.2024 11:37
Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Göngin um Hvalfjörð verða lokuð miðvikudaginn 15. maí frá klukkan 21til 23 vegna umfangsmikillar brunaæfingar á vegum Vegagerðarinnar, Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Innlent 13.5.2024 14:12
Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Bergur Vilhjálmsson á nú aðeins eftir að ganga tíu af þeim hundrað kílómetrum sem hann ætlaði sér að klára gangandi. Bergur lagði af stað á sumardaginn fyrsta og býst við því að klára gönguna um klukkan 14 í dag. Innlent 27.4.2024 08:42
Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Björgunarsveitarfólk hafði í nógu að snúast í dag og þurfti að fara í margskonar útköll. Koma þurfti áhöfn smábáts til aðstoðar undan ströndum Snæfellsness og þar að auki þurfti að koma göngumanni til aðstoðar við gönguleiðina upp að Glym. Þá barst einnig tilkynning um slys á vélsleða við Háskerðing, norðan Mýrdalsjökuls. Innlent 25.4.2024 17:42
Gengur hundrað kílómetra með hundrað kílóa sleða Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, ætlar á sumardaginn fyrsta ganga 100 kílómetra til styrktar Píeta samtökunum. Á eftir sér mun hann draga 100 kílóa sleða sem hann léttir á tíu kílómetra fresti. Lífið 17.4.2024 10:00
Ótrúlegt sveitabrúðkaup í Hvalfirðinum Ofurhlaupaparið Sigurjón Ernir Sturluson og Simona Vareikaité gengu í hnapphelduna við fallega athöfn í Innri-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit 6. apríl síðastliðinn, á tíu ára sambandsafmæli þeirra. Líf og fjör var í athöfninni og dilluðu hjónin sér út kirkjugólfið við mikil fagnaðarlæti gesta. Lífið 8.4.2024 14:00
Fengu fullkomið veður við áratugalanga hefð í Hvalfirði Sólin hefur skinið skært á suðvesturhorninu í dag og margir nýttu góða veðrið í útiveru. Þar á meðal ferðalangar í Hvalfirði sem tíndu krækling í fjörunni á meðan þeir fylltu á D-vítamín tankinn. Innlent 29.3.2024 19:31
Taka upp meðalhraðaeftirlit í Hvalfjarðargöngum Á fimmtudag verður tekið í notkun meðalhraðaeftirlit í Hvalfjarðargöngunum. Hámarkshraði í Hvalfjarðargöngunum er 70 kílómetrar á klukkustund. Samskonar meðalhraðaeftirlit er að finna í göngum á milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar og í Dýrafjarðargöngum. Innlent 20.2.2024 15:37
Nafn mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Maðurinn sem lést umferðarslysi á Vesturlandsvegi þann 16. janúar hét Guðjón Einar Guðvarðarson. Hann var búsettur í Borgarnesi. Innlent 30.1.2024 14:31
Slysið við Hvalfjarðarveg var banaslys Einn lést í þriggja bíla árekstri við gatnamót Hvalfjarðarvegar og Hringvegar í gærmorgun. Innlent 17.1.2024 12:21
Þriggja bíla árekstur við Hvalfjarðarveg Ásmundur Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi segir enn unnið á vettvangi alvarlegs umferðarslyss við gatnamót Hvalfjarðarvegar og Hringvegar í morgun. Þar skullu saman þrjú ökutæki, tvö stærri ökutæki og einn fólksbíll. Innlent 16.1.2024 12:37
Þrír fluttir á slysadeild eftir alvarlegt bílslys í Hvalfjarðarsveit Gatnamótum Hvalfjarðarvegar og Hringvegar hefur verið lokað eftir að umferðarslys. Um er að ræða nyrðri gatnamót veganna, nær Akranesi. Tveir bílar lentu þar í árekstri. Innlent 16.1.2024 10:38
Fjölsóttar bænastundir vegna alvarlegs bílslyss Fjölmennar bænastundir voru haldnar á þremur stöðum í gær vegna alvarlegs bílslyss fyrir tæpri viku síðan. Kona á sjötugsaldri lést í slysinu. Tvö liggja enn þungt haldin á spítala. Innlent 20.12.2023 11:22
Nafn konunnar sem lést í slysinu á Vesturlandsvegi Konan sem lést í umferðarslysinu sem varð við Vesturlandsveg á miðvikudag hét Jóninna Huld Haraldsdóttir. Innlent 17.12.2023 21:59
Banaslys á Vesturlandsvegi Einn lést í alvarlegu umferðarslysi á Vesturlandsvegi til mót við Skipanes á fjórða tímanum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Innlent 14.12.2023 09:38