Líftæknifyrirtækið WuXi NextCode sagði upp 27 starfsmönnum í gær. Framkvæmdastjóri félagsins segja þetta lið í endurskipulagningu fyrirtækisins á heimsvísu en um 40 manns munu starfa hjá NextCode eftir niðurskurðinn.
Fyrirtækið var stofnað af Hannesi Smárasyni ásamt fleirum en starfsemi þess lýtur að því að nota upplýsingar um erfðamengi til að uppgötva virkni ákveðinna gena. Íslensk erfðagreining kom NextCode á fót til að selja sjúkdómsgreiningar til lækna og sjúkrahúsa í Bandaríkjunum.
Hákon Guðbjartsson, framkvæmdastjóri WuXi NextCode, segir fyrirtækið hafa þurft aukið fjármagn til að framfylgja áætlunum sínum til lengri tíma og því var gripið til uppsagna.
Tengist þetta kaupum fyrirtækisins á Dynomic Medicine Ireland síðastliðið haust.
„Þetta er eitthvað sem var óhjákvæmilegt til að minnka brennslu,“ segir Hákon en fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun um hópuppsögn í gær.
WuXi NextCode segir upp 27 manns

Tengdar fréttir

Wuxi NextCODE fær 25 milljarða fjármögnun frá alþjóðlegum fjárfestum
Wuxi NextCODE, sem meðal annars var stofnað af Hannesi Smárasyni ásamt fleirum og er með skrifstofur á Íslandi, hefur lokið 200 milljón dollara fjármögnun. Það jafngildir 24,5 milljörðum króna.