Þetta segir Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates, þjónustufyrirtækis á Keflavíkurflugvelli. Hann var fyrr í vikunni bjartsýnn á að það tækist að bjarga WOW air og hann fer ekki leynt með að þessi niðurstaða, að félagið sé fallið, séu gríðarleg vonbrigði. Því það hafi verið raunveruleg tækifæri til að bjarga fyrirtækinu.
WOW air stærsti viðskiptavinur Airport Associates
Jóhann K. Jóhannsson fréttamaður fór og hitti Sigþór Kristinn úti á Keflavíkurflugvelli nú í morgun. Sigþór Kristinn var daufur í dálkinn, sem von er. Fréttirnar í morgun eru reiðarslag; katastrófa.„Þessi hætta hefur alltaf verið fyrir hendi. Að flugvélaleigusalar hafi verið hræddir. Og, þori hreinlega ekki að senda vélarnar hingað til Íslands. Jú, þetta var hættan, að þetta gæti endað svona.“

„WOW air er okkar stærsti viðskiptavinur þannig að þetta kallar á endurskipulagningu og við þurfum að vinna í breytingum á fyrirtækinu.“
Mjög líklega kemur til uppsagna hjá Airport Associates í kjölfar þrota WOW air.
Starfsemin í uppnámi
„Næstu skref fyrir okkur er endurskipulagning starfseminnar miðað við þessa nýju stöðu. Staðan almennt, vegna þessara tíðinda, er alls ekki góð. Á sama tíma og WOW er að fara eru vandræði vegna þessa Max véla. Ég held að þetta verði áfall fyrir allt þjóðarbúið.“Vandræði Icelandair vegna þessara nýju Boeing Max, höfðu þau áhrif á að leigusalarnir kyrrsettu vélarnar?
„Já, alveg klárlega. Það er gríðarleg eftirspurn eftir flugvélum núna. Verðið hefur verið að fara upp. Hættan er sú; ók, eiga þessir leigusalar að taka áhættuna á því að félagið fari í þrot og vélarnar verði kyrrsettar hér á Keflavíkurflugvelli vegna skulda eða eiga þeir að koma þeim í önnur verkefni sem eru betur borguð? Þetta var alltaf ákveðin hætta.“

Starfsfólk í áfalli
Stjórnendur Airport Associates fóru strax í morgun, þá er tíðindin lágu fyrir, í allar deildir fyrirtækisins og ræddu við starfsfólk, eftir föngum.„Augljóslega er fullt af öðrum flugfélögum sem við erum að afgreiða og við þurfum að halda sjó. Það eru allir í áfalli vegna þessa og erfitt að geta ekki bara farið heim útaf þessu sjokki. En, í sjálfu sér er fullt af öðrum flugfélögum sem þarf að þjónusta.
En, já, starfsfólkið er í áfalli en hefur tekið þessum tíðindum af stillingu.Þær upplýsingar sem við fengum í flugstöðinni í morgun, farþegar voru að sýna þessu stillingu.
Áhrifin á Airport Associates til skamms tíma verða mikil vegna þessa, Wow air var stærsti viðskiptavinur fyrirtækisins. En, Sigþór Kristinn telur að það muni jafna sig til lengri tíma litið. „Það fyllist uppí þetta stóra gat en það er ekki að fara að gerast fyrir þetta sumar. Öll flugfélög löngu skipulagt starfsemi sína fyrir það.“