Hrafnista mun taka við rekstri Skógarbæjar, sem á og rekur samnefnt hjúkrunarheimili við Árskóga í Reykjavík, þann 2. maí næstkomandi. Skógarbær og Sjómannadagsráð, eigandi Hrafnistu, hafa ritað undir samning þessa efnis.
Í tilkynningu segir að rekstur og skuldbindingar starfseminnar muni áfram hvíla hjá Skógarbæ, en Hrafnista taki yfir að stjórna og reka hjúkrunarheimilið. Rebekka Ingadóttir, sem stýrt hefur málum Hrafnistu í Boðaþingi síðustu ár, hefur verið ráðinn forstöðumaður Skógarbæjar frá 1. maí.
„Í dag og á næstunni verða haldnir kynningarfundir fyrir starfsfólk, heimilisfólk og aðstandendur vegna breytinganna þar sem starfsemi og hugmyndafræði Hrafnistu verður kynnt. Mannauðstefna Hrafnistu mun gilda í Skógarbæ líkt og á öðrum Hrafnistuheimilum og engin breyting verður á ráðningarsambandi við starfsfólks sem áfram verður við Skógarbæ. Starfseminni verður háttað í samræmi við hugmyndafræði Hrafnistu þar sem áhersla er lögð á andlega, líkamlega og félagslega vellíðan íbúanna.
Á samningstímabilinu, sem er til að byrja með til ársloka 2020, verður Hrafnista Skógarbæ sjálfstæður hluti rekstrarsamstæðu Sjómannadagsráðs. Í samningnum felst einnig nýting og rekstur á hluta af húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Árskóga sem samtengd er hjúkrunarheimilinu og rekin er af Reykjavíkurborg að hluta. Við lok núgildandi samningstíma endurnýjast samningurinn sjálfkrafa til tveggja ára í senn þar til nýr samningur hefur verið undirritaður eða honum sagt upp með samningsbundnum fyrirvara,“ segir í tilkynningunni.
Hrafnistuheimilin eru með starfsemi á sex stöðum í fimm sveitarfélögum, auk þess sem sjöunda Hrafnistuheimilið tekur til starfa í árslok í Fossvogi í Reykjavík.
Hrafnista tekur við rekstri Skógarbæjar
Atli Ísleifsson skrifar

Mest lesið


Þau vilja stýra ÁTVR
Viðskipti innlent

Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld
Viðskipti innlent

Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent
Viðskipti innlent

Kemur til móts við bílaframleiðendur vegna tolla
Viðskipti erlent

Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi
Viðskipti innlent

Ráðinn forstjóri Arctic Fish
Viðskipti innlent

Býst ekki við að verðbólgan hafi áhrif á vaxtalækkunarferlið
Viðskipti innlent

Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik
Viðskipti innlent

Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi
Viðskipti innlent