Íslenskur vert stórslasaður eftir mótorhjólaslys í Taílandi Jakob Bjarnar og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 5. apríl 2019 12:38 Hugað að Samúel Þór eftir slysið. Um er að ræða skjáskot úr myndbandi sem tekið var á vettvangi.
Samúel Þór Hermannson liggur stórslasaður á sjúkrahúsi í Taílandi eftir mótorhjólaslys sem hann lenti í fyrir rétt tæpum hálfum mánuði. Samúel Þór er frá Kópavogi en hann er eigandi Pablo Discobar sem er vinsæll veitingastaður í miðborg Reykjavíkur, við Ingólfstorg. Í samtali við Vísi segist Samúel Þór vera lamaður vinstra megin í andlitinu en hann ber sig að öðru leyti þokkalega. Hann lá láréttur og var á leið í læknisskoðun og þurfti að gera hlé á samtalinu fram á dag. Fréttablaðið ræddi við Samúel í morgun en hann er staddur í bænum Hua Hin, á sjúkrahúsi þar.Mánaðarlangt frí endaði með ósköpum Samúel Þór fór var í mánaðarlöngu fríi ásamt fjórtán ára dóttur sinni þegar ósköpun riðu yfir. Vegfarandi í Taílandi tók upp myndband eftir slysið, sendi það raunar út í beinni útsendingu á Facebook. Þar má sjá Samúel Þór meðvitundarlausan. Hann tekur það fram í samtali við Fréttablaðið að hann hafi verið með hjálm þegar hann var á mótorhjólinu en búið var að fjarlægja hann þegar myndskeiðið var tekið upp. Aðeins voru þrír dagar eftir af fríinu þegar óhappið varð. Samúel Þór stríðir nú við minnisleysi og óvist hvenær hann verður ferðafær og kemst til Íslands. Meiðsli hans eru alvarleg og meðal annars á hann við alvarlega höfuðáverka að stríða sem þýðir að hann getur vart stigið í flugvél næsta mánuðinn eða svo. Það blæddi inn á heila hans. Samúel ætlaði að skreppa út í búð á mótorhjóli sem hann var með á leigu en fram kemur á frettabladid.is að hann hafi verið vanur hjólreiðum. En, þá ók bíll í veg fyrir hann með þeim afleiðingum að hann og hjólið skall í götunni. Bílstjóri þess bíls lét sig hins vegar hverfa af vettvangi. Engin rannsókn hefur farið fram á slysinu og er lögregla búin að loka málinu fyrir sína parta. Samúel hins vegar sá svo myndbandið af sjálfum sér á slysstað nokkrum dögum síðar, en það var gangandi vegfarandi sem kom þar að og lyfti síma sínum til að taka upp myndskeið af vettvangi.Fyrstu dagarnir í móðu Þar má sjá Samúel liggja meðvitundarlausan og blóðugan á götunni. Vegfarendur huga að honum og þá koma sjúkraliðar á vettvang. Samúel Þór var ekki í aðstöðu til að fara nákvæmlega yfir tildrög slyssins og lýsa líðan sinni eftir slysið. Hann var á leið í læknisskoðun og var talandi hans óskýr, því hann er lamaður í hálfu andlitinu. Að sögn hans vona læknar að sú lömun gangi til baka en það er þó ekki vitað. Samúel Þór vissi ekki af sér fyrr en hann komst til meðvitundar á spítalanum en þá var hann búinn að tapa heyrn og nefbrotinn. Í frásögn frettabladid.is kemur fram að hann hafi reynt að hringja í dóttur sína þegar hann komst til meðvitundar en fyrstu dagarnir voru í móðu. Slysið var, eins og gefur að skilja, mikið áfall fyrir dóttur hans en fljótlega eftir slysið kom barnsmóðir Samúels til Tælands og fylgdi henni til Íslands. Samúel Þór er fyrst og fremst þakklátur fyrir að vera á lífi, hann er þakklátur fyrir að eiga góða að, segir hann í samtali við frettabladid.is. Í fyrstu var hann á almennu sjúkrahúsi hvar aðbúnaður var ekki góður en hann liggur nú við betri aðstæður.Myndband sem fylgdi fréttinni hefur verið fjarlægt.
Samgönguslys Taíland Mest lesið Sá eini fagmenntaði missti vinnuna Innlent Þyrla ferjaði vistir fyrir fjallgönguhóp Ratcliffe Innlent Óttast að efnið sé þegar komið í dreifingu á Íslandi Innlent Kviknaði í gömlum bústað við Rauðavatn Innlent Óbeit ungra drengja á trans fólki áhyggjuefni Innlent „Kynjafræði er pólitísk í eðli sínu“ Innlent Ekki mikill sparnaður í að segja upp fagfólki Innlent „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Erlent Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju Erlent „Allt sem er innan velsæmismarka verður tekið til greina“ Innlent Fleiri fréttir Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Herða reglur til að „kæla aðeins niður hitann“ í Rauða þræðinum Tæknidagur fjölskyldunnar er í Neskaupstað í dag Ekki mikill sparnaður í að segja upp fagfólki Óbeit ungra drengja á trans fólki áhyggjuefni Menntaðir þjónar sniðgengnir og óbeit ungra drengja á trans fólki Óttast að efnið sé þegar komið í dreifingu á Íslandi Landris hafið og enn dregur úr skjálftavirkni Þyrla ferjaði vistir fyrir fjallgönguhóp Ratcliffe Mannúðarmál að fangar fái að afplána í sínu heimalandi Sá eini fagmenntaði missti vinnuna Fangageymslur fullar eftir nóttina Kviknaði í gömlum bústað við Rauðavatn „Kynjafræði er pólitísk í eðli sínu“ Vilja fækka leyfilegum fjölda borgarfulltrúa Segir mjög litlar líkur á öðru gosi á næstunni „Allt sem er innan velsæmismarka verður tekið til greina“ Eldrauðar kauphallir og færri hraðahindranir í borginni Björg Ásta nýr framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins Ákærður fyrir að aka stolnum bíl út af skakkur og dauðadrukkinn „Þetta er risastór áfangi og gleðitíðindi fyrir Kópavogsbæ“ Hætta við uppbygginguna vegna „neikvæðrar umræðu“ Landris hafið á ný Arndís Bára lögreglustjóri næsta árið Fyrstu samtöl við Rubio lofi góðu Innan við helmingur barna segir frá kynferðisofbeldinu Gefa út ferðaleiðbeiningar fyrir hinsegin fólk Hafi fullan stuðning til að auka útgjöld til varnarmála Mátti binda barn á höndum og fótum og kitla það SFS hafi skrópað á fund ráðuneytisins Sjá meira