It’s falling pic.twitter.com/TE705LNfdw
— Hash Miser (@H_Miser) April 15, 2019
Á samfélagsmiðlum má sjá myndbönd þar sem mikill reykur berst frá kirkjunni og eldtungur stíga upp úr byggingunni. Ekki er ljóst um upptök eldsins en talið er að hann gæti tengst endurnýjun kirkjunnar sem stendur yfir.
Götum í nágrenni kirkjunnar hefur verið lokað vegna slökkvistarfs.
Eitt helsta kennileiti Parísar
Notre Dame kirkjan er eitt helsta kennileiti Parísarborgar og var hún reist á árunum 1163 til 1345. Kirkjan er byggð í gotneskum stíl og stendur á Ile de la Cité, annarri af tveimur eyjum Signu, í fjórða hverfi Parísar. Byrjað var að byggja Notre Dame árið 1160 og var verkinu að mestu lokið árið 1260.Á tíunda áratug 18. aldar þegar franska byltingin stóð sem hæst voru unnar skemmdir á kirkjunni en skömmu eftir að bók Victor Hugo, Hringjarinn frá Notre Dame, kom út árið 1831 fór kirkjan að njóta vinsælda á ný. Talið er að 12 milljónir manna heimsæki kirkjuna árlega. Kaþólska kirkjan hóf söfnun á síðasta ári til þess að bjarga mætti kirkjunni þar sem hún var byrjuð að molna.
Almenningur virði lokanir
Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar hefur greint frá því að slökkvistarf sé hafið. Einnig hefur hún biðlað til almennings að virða lokanir í kringum kirkjuna sögufrægu.Un terrible incendie est en cours à la cathédrale Notre-Dame de Paris. Les @PompiersParis sont en train de tenter de maîtriser les flammes. Nous sommes mobilisés sur place en lien étroit avec le @dioceseParis. J'invite chacune et chacun à respecter le périmètre de sécurité. pic.twitter.com/9X0tGtlgba
— Anne Hidalgo (@Anne_Hidalgo) April 15, 2019
Borgarsaksóknari Parísar hefur hafið rannsókn á tildrögum brunans. Yfirvöld hafa gefið út að enginn hafi látist í brunanum og einnig að enginn hafi slasast á vettvangi.
Talsmaður kirkjunnar hefur greint frá því að viðargrind kirkjunnar, sem reist var á miðöldum, brenni í heild sinni.
Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hefur brugðist við brunanum á Twitter síðu sinni. Macron frestaði fyrirhugaðri ræðu sinni sem stjórnmálaspekingar höfðu kallað „mikilvægustu ræðu stjórnmálaferils forsetans.“
Hér að neðan má sjá beina útsendingu frönsku fréttastöðvarinnar France24.
These are some of the latest images from the Notre Dame fire in Paris pic.twitter.com/1qz3S83wmp
— TicToc by Bloomberg (@tictoc) April 15, 2019
Fire at Notre Dam cathedral in Paris right now. Doesn’t look good at all... pic.twitter.com/bJmoY3Y8YF
— Kabir Taneja (@KabirTaneja) April 15, 2019
Notre Dame burning in #Paris. #ParisFirepic.twitter.com/V66qQSqpl8
— Wilson Conn (@wilson_conn) April 15, 2019
It’s getting worse. But the fire brigade has turned up. Hard to see how the tackle this. The plume of smoke is already 100s of feet long. pic.twitter.com/5LBf2odKka
— Shiv Malik (@shivmalik) April 15, 2019

