Skoðun

Og hvað svo?

Sólveig Anna Jónsdóttir og Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins, Eflingar – stéttarfélags og VR hittust þann 9. apríl, í vikunni eftir að skrifað var undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins.

Ríkið lagði eitt og annað til í púkkið í tengslum við samninginn og kynnti tillögur sínar undir yfirskriftinni „Lífskjarasamningurinn“. Það er gleðilegt að ríkið teygði sig lengra í tengslum við kjaraviðræðurnar en fyrri yfirlýsingar gáfu til kynna og sýnir að markviss barátta verkalýðshreyfingarinnar getur skilað miklum árangri. En við hljótum engu að síður að spyrja: Lífskjör hverra er um að ræða? Hver verða næstu skref?

Forystufólk ÖBÍ og verkalýðsfélaganna er sammála um að bæta þarf kjör lágtekjufólks verulega. Þetta á ekki aðeins við um launafólk heldur einnig örorkulífeyrisþega og stóran hóp aldraðra. Enda þótt hóparnir þurfi að berjast hatrammri baráttu fyrir betri kjörum, er einn munur á. Launafólk getur samið um sín kjör og fylgt kröfum sínum eftir gagnvart atvinnurekendum, jafnvel með verkfallsaðgerðum. Þetta á ekki við um lífeyrisþega. Þeir eru undir náð og miskunn ríkisstjórnar og Alþingis komnir hverju sinni. Ljóst er að það fyrirkomulag hefur haldið öryrkjum og hluta aldraðra í fátækt.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ
Það er óásættanlegt að lífeyrisþegar sitji alltaf eftir, aftast í goggunarröðinni, og þurfi eilíft að bíða eftir kjarabótum. Núverandi forsætisráðherra lýsti því eitt sinn eftirminnilega yfir á Alþingi að „stjórnvöld eiga ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlætinu“. Og við tökum undir þau orð. Það er óþolandi að í svo ríku samfélagi sé fólki haldið í fátækt af þeirri einu ástæðu að ekki er hægt að „nýta“ það til vinnu.

Samstarf ÖBÍ við verkalýðshreyfinguna hefur verið gott og það heldur áfram. Verkalýðshreyfingin hefur ekki umboð til samninga fyrir öryrkja, en forsvarsmenn beggja hópa tala saman og vinna saman. Þar má nefna sem dæmi afstöðu til starfsgetumatsins, en á síðasta þingi ASÍ tók Alþýðusambandið undir með ÖBÍ um að leggjast gegn starfsgetumati, sem er mikilvæg pólitísk stefnubreyting hjá verkalýðshreyfingunni.

Við spyrjum: Ættu örorkulífeyrisþegar og sömuleiðis ellilífeyrisþegar ekki að eiga sæti við samningaborðið? Ljóst er að þessir hópar eiga fullan rétt á því að lifa mannsæmandi lífi, eins og annað fólk. Þau sem tilheyra þessum hópum hafa velflest verið í verkalýðsfélögum ýmist allan eða stóran hluta starfsævinnar. Það er í öllu falli fullreynt að sýna traust til stjórnvalda. Það gengur ekki lengur að þau skammti sumum hópum úr hnefa eins og hingað til og taki þátt í að viðhalda grimmu og mannfjandsamlegu kerfi. Þetta er sanngjörn krafa tugþúsunda kvenna og karla. Næst á dagskrá hlýtur að vera Lífskjarasamningur númer tvö.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×