Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa eftir að liðsmenn Hatara veifuðu borða með fána Palestínu í beinni útsendingu í stigagjöfinni í gærkvöldi. Hatarar höfðu áður sagst ætla að nýta dagskrárvaldið til að gagnrýna stefnu Ísraelsríkis og segir aktívistinn, Björk Vilhelmsdóttir, að þeir hafi staðið við orð sín.
„Þarna bara nefndu þeir orðið sem enginn vildi nefna og það er algjörlega stórkostlegt að þeir skyldu gera það,“ segir Björk.
Samtökin BDS, sem berjast fyrir sniðgöngu Ísrael, gefa hins vegar lítið fyrir uppátækið og segja að þó Hatari hafi sýnt samstöðu með Palestínu sé ekki hægt að samþykkja gjörninginn. Réttast hefði verið að sniðganga söngvakeppnina alfarið. Björk segir að sniðgönguhreyfingin sé vissulega mikilvæg en það útiloki ekki aðrar aðferðir. Útspil Hatara sé mikilvæg vitundarvakning.
„Þeir bentu á það að það var eitthvað þarna miklu meira að. Þarna er mjög grimmt hernám og það þurfti einhver að segja það og okkar fólk gerði það,“ segir Björk.

„Þá tók hjartað kipp. Það kom neisti og jákvæð upplifun að þetta hefði virkilega gerst,“ segir Tinna Björk.
Abdulnasser tekur í sama streng. „Ég er glaður í hjarta mínu og sál. Nú hefur vandi okkar hlotið athygli víða. Við gleymum aldrei Íslandi fyrir það. Þetta verður skrifað í sögubækurnar,“ segir Abdulnasser.
Fjölmiðlar í Palestínu hafa margir sett sig í samband við Abdulnasser í dag, sem og vinir og ættingar. „Gervöll Palestína gladdist yfir því sem gerðist. Margir blaðamenn sögðu að við hefðum unnið Eurovision ekki aðrir. Palestína var sigurvegarinn í Eurovision í gær og Ísland stuðlaði að því.“