Íbúar í Árnessýslu hafa beðið nokkuð lengi eftir að framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi hefjist en hálfgert neyðarástand skapaðist eftir að dvalar og hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri og Blesastöðum á Skeiðum var lokað fyrir nokkrum árum. Biðlisti eru í dag eftir plássi á hjúkrunarheimili í sýslunni. Framkvæmdasýsla ríkisins er með málið í sínum höndum og er þessa dagana að útbúa útboðsgögn.
„Hönnun er á lokametrunum og verið að klára útboðsgögnin. Það er búið að vera að rýna ýmsar lausnir með tilliti til rekstrar og endingar, enda er þetta stór og kostnaðarsöm bygging, mikil fjárfesting, þannig að þetta er bara að smella hjá okkur“, segir Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslunnar.
Hvað gerist þá næst í málinu?
„Við erum að horfa á að útboðið fari fram núna í júní og tilboðin verði opnuð í ágúst og framkvæmdir fari þá í gang í byrjun september, þannig að skóflustunga verði í ágúst eða september“, bætir Guðrún við.

Hvernig líst Guðrúnu á það?
„Okkur líst bara mjög vel á það, þarna myndast mjög skjólgóður og fínn garður í miðjunni og öll dagrými, setustofur og fleira tengjast inn í hringinn og á móti njóta öll hjúkrunarrými útsýnis út á hringinn. Við teljum að þetta verði mjög spennandi og flott viðbót í flóruna á hjúkrunarheimilum hér á landi“.
Kostnaður við nýja hjúkrunarheimilið verður 2,8 milljarðar króna en framkvæmdasýslan gefur ekki upp sundurliðun eftir verkþáttum á þessu stigi þar sem útboð hefur ekki farið fram.