Snjallsímaframleiðendur eru í sterkum mótbyr og markaðurinn er í frjálsu falli. Þannig hafa Sundar Pichai, forstjóri Google, og greiningarfyrirtækið Canalys lýst stöðu snjallsímamarkaðarins nýverið. Tölurnar sem birtust í skýrslu Canalys fyrir fyrsta ársfjórðung fyrr í mánuðinum renna stoðum undir þennan málflutning.
Hjá risunum tveimur á markaði, Samsung og Apple, sem höfðu um 39 prósenta markaðshlutdeild á fyrsta ársfjórðungi 2018, er staðan einna svörtust. Markaðshlutdeildin stóð í 35,6 í ár og seldum snjallsímum fækkaði samanlagt um tuttugu milljónir. Sala hjá Apple dróst saman um 23,2 prósent og Samsung um tíu prósent. Heilt yfir dróst sala snjallsíma á heimsvísu saman um 6,8 prósent.
Fyrir þessu eru ýmsar ástæður. Greinendur sem tæknimiðillinn Techcrunch ræddi við bentu á að nýjasta flaggskip Apple, iPhone XS, hafi verið of líkur fyrri síma og að snjallsímar nú séu orðnir það góðir og dýrir að neytendur kaupi sér sjaldnar nýja síma. Þá hefur áður verið bent á það að sala nýrra snjallsíma í Kína, sem áður keyrði áfram vöxtinn, hefur dregist saman undanfarin misseri.
Þrátt fyrir samdrátt í heildina mátti finna augljósan sigurvegara á fyrsta ársfjórðungi ársins. Sala á Huawei-símum jókst nefnilega um helming miðað við sama tíma í fyrra. Úr 39 milljónum í 59. Svo virðist sem háværar ásakanir um að fyrirtækið njósni um neytendur hafi lítil áhrif á heildarmyndina.
Snjallsímar í frjálsu falli
Þórgnýr Einar Albertsson skrifar

Mest lesið

„Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“
Viðskipti innlent


Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju
Viðskipti innlent


Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar
Viðskipti innlent

Jón Guðni tekur við formennsku
Viðskipti innlent

KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti
Viðskipti innlent

Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út
Viðskipti innlent

Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti
Viðskipti innlent

Trump hafi „ekki hugmynd“ um hvað hann sé að gera
Viðskipti erlent