„Við vildum fáum það leitt fram hvort að þetta væri heimilt, að stunda hleranir sem þessar. Nú liggur fyrir að svo er ekki. Það er býsna ánægjulegt að okkar mati,“ sagði Bergþór í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Í úrskurðinum segir að leynileg hljóðupptaka Báru á samræðum þingmanna á Klausturbar hafi brotið í bága við persónuverndarlög. Henni er því gert að eyða upptökunni fyrir 5. júní og senda persónuvernd staðfestingu á því. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, lögmaður Báru, segir að svo verði gert.
Sjá einnig: Miðflokksmenn geti höfðað skaðabótamál
Bergþór segir þó að vegna anna við umræður Miðflokksins á þingi um þriðja orkupakkann hafi ekki gefist tími til að fara rækilega yfir úrskurðinn.

Alma Tryggvadóttir, sérfræðingur í persónurétti, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag, að Miðflokksmenn standi nú frammi fyrir tveimur möguleikum. Þeir geti höfðað einkamál og krafist skaðabóta frá Báru eða borið úrskurð Persónuverndar undir dómstóla telji þeir hann efnislega rangan. Þá geta þeir einnig unað úrskurðinum.
Bergþór sagði næstu skref ekki hafa verið ákveðin.

Sjá einnig: Enginn „samverknaður“ af hálfu Báru á Klaustri
Þá sagðist hann úrskurð Persónuverndar þó ekki breyta því að hann skammaðist sín fyrir þau ummæli sem látin voru falla á Klausturbar.
„Hvað mig varðar dregur það ekkert úr því að ég skammast mín fyrir það sem ég sagði á þessum tíma og hef margbeðist afsökunar á því til þeirra sem við á.“