Hann kom djúpstæðri óánægju sinni á framfæri á tónleikum sem hann hélt í ítölsku borginni Veróna á miðvikudagskvöldið síðasta.
„Ég skammast mín fyrir heimalandið mitt og það sem gengið hefur á. Þetta hefur sundrað fólki. Ég er kominn með dauðans ógeð af stjórnmálamönnum og sér í lagi þeim bresku. Ég er kominn með upp í kok af Brexit. Ég er Evrópubúi. Ég er ekki heimskur, nýlendudrottnandi, heimsvaldasinnaður, breskur fáviti.“
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Elton John úthúðar breskum stjórnmálamönnum. Síðasta sumar sagði hann að spunameistarar hefðu logið að breskum almenningi, alveg frá upphafi málsins.
„Þeim var lofað einhverju sem var með öllu fáránlegt og ekki í samræmi við efnahagslegan veruleika.“
Tónleikarnir í Veróna voru liður í síðasta tónleikaferðalagi Eltons John um heiminn. Tónlistarmaðurinn er með sjálfsævisögu í bígerð en hann stefnir að því að gefa út hið sjálfsævisögulega rit með haustinu.
Rocketman, kvikmynd sem er byggð á ævi söngvarans, er þegar komin í kvikmyndahús en hún fjallar um tímabilið þegar hann braust til frægðar og glímu hans við fíknina.