

Tillögur um úrræði
Sá sem þetta ritar fylgir opnunarstefnu, aukinni fjölþjóðasamvinnu og viðskiptum í anda samþættingar, sjálfbærni og samkeppnishæfni. Áfangi í þeirri viðleitni var þátttaka í samþykkt flokksþings Framsóknarmanna 2009 um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Þá voru sett níu umfangsmikil aðalskilyrði til að tryggja réttindi, hagsmuni og sérstöðu Íslendinga. Nauðsynlegt er að setja málefnaleg skilyrði og tryggja þjóðarhag, sérstöðu og þjóðerni.
En við eigum að virða tortryggni og efasemdir manna og mæta þeim. Mikilvægt er að sem mest samstaða sé í afstöðu til fjölþjóðasamskipta og utanríkismála. Slíkt er hagsmunamál þjóðarinnar allrar. Öðrum kosti aukast illdeilur og efi verður andúð, en sundrung getur vegið að sjálfstæði þjóðarinnar.
Hér skulu nokkur úrræði nefnd:
Að fyrirvarar við 3. orkupakka Evrópusambandsins fari, eftir samþykkt Alþingis, fyrir sameiginlegu EES-nefndina til staðfestingar, og taki 3. pakkinn fyrst gildi fyrir Ísland eftir að slík staðfesting liggur fyrir. Þetta er rökstutt með vægi orkulinda og orkunýtingar sem grunnforsendu byggðar í landinu. Orð sérfræðinga hníga að því að ekki sé varanlegt hald í öðrum staðfestingum.
Að innflutningur á ófrystu kjöti, eggjum o.fl. verði því aðeins heimilaður að fullkomnar vottanir með jákvæðri niðurstöðu liggi fyrir um allan framleiðsluferilinn ásamt viðurkenningu framleiðenda og úrvinnslu, og sérstaklega verði heimilt að taka vörusendingar til skoðunar til að framfylgja þessu. Þetta er rökstutt með smithættu og sem forsenda fyrir heilsuvernd búfjárstofna og fjölbreytni í lífríki.
Að lögfestar verði beinar hömlur við fjöldauppkaupum sama einkaaðila eða tengdra aðila, hvort sem eru Íslendingar eða útlendir, á jarðeignum, lóðum og fasteignum. Sams konar ákvæði verði síðan lögfest um vatnsréttindi, veiðiár, hitaréttindi og önnur hlunnindi. Þetta er rökstutt með tilvísun til fámennis í landinu, samheldni og byggðarfestu og mikilvægis auðlindanna.
Að lögfest verði skylda atvinnurekenda til að veita útlendu starfsfólki við afgreiðslustörf námsaðstöðu til að það geti annast nauðsynleg tjáskipti á íslensku. Síðan verði gert átak til að styrkja aðstöðu og tækifæri innflytjenda og erlendra starfsmanna til að ná tökum á íslensku máli og ná rétti sínum hér á landi.
Að stjórnvöld menningarmála komi því til leiðar að vandaður og skýr framburður íslenskrar tungu, hófsamleg málvöndun og virðing fyrir málhefðum íslenskunnar verði virk stefnumið í fjölmiðlum og þá einkum Ríkisútvarpinu, sjónvarpi og hljóðvarpi. Þessu verði framfylgt af hyggindum og festu.
Að stjórnmálaflokkar og hagsmunasamtök taki reynsluna af öllum þessum fjölþjóðlegu samskiptum til víðtækrar umræðu, upplýsingaöflunar og miðlunar. Það er mikilvægt fyrir þjóðina að taka stöðu, kanna hagsmuni og rök og rýna fram á veginn.
Skoðun

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar