

Aðlögun vegna loftslagsbreytinga
Við loftslagsbreytingunum verður að bregðast, hraðar en hingað til. Það gerist m.a. með því að fylgja alþjóðlegum samningum og taka undir höft á raforkuframleiðslu með jarðefnaeldsneyti, samhliða hraðari orkuskiptum með nýjungum. Allt að 2/3 hluta þekktra kola-, olíu- og gasbirgða má ekki vinna. Minnka ber vinnslu málma og jarðefna í takt við aukna endurnýtingu þeirra.
Nýta tré í stað steinsteypu. Minnka matarsóun og stunda hóflega neyslu og vörukaup, sem mest í nærumhverfinu. Auka bindingu kolefnis og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Að mörgu jákvæðu er unnið í miklum meirihluta landa heims en afar fá ná þeim hraða sem þarf, enn sem komið er. Þýði það minni hagvöxt, breyttan lífsstíl og aukið aðhald, verður svo að vera.
Loftslagsbreytingar kalla á aðlögun samfélaga og alls konar mótvægisaðgerðir sem svör við afleiðingum hennar. Ríkisvaldið, sveitarfélög, helstu sérfræðistofnanir framkvæmda og eftirlits (t.d. Siglingastofnun, Samgöngustofa, Vegagerðin og Mannvirkjastofnun), Almannavarnir og þekkingar- og hagsmunasamtök eiga að mynda þverfaglegan samráðshóp með aðstöðu og starfsfólki. Hann ynni náið með nýja Loftslagsráðinu og sérfræðistofnunum þess (t.d. Veðurstofunni). Hlutverk hópsins væri að safna upplýsingum um leiðir til aðlögunar og mótvægis, hafa yfirsýn og aðhald með verkefnum og fræða sem flesta um stöðu og leiðir. Slíkur hópur eða ráð er vænni kostur en að fela Loftslagsráði þetta hlutverk ásamt öllu öðru er að starfsemi þess lýtur.
Skoðun

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar