
Bara falsfrétt?
Ung stúlka á ungmennaþinginu ræddi um ábyrgðarleysi mannsins og sagði: „Skemmdarverk mannsins hafa ekki aðeins haft áhrif á Jörðina heldur allt það sem á henni býr.“ Hún gerir sér ljósa grein fyrir ábyrgð mannkyns og vill snúa skelfilegri þróun við. Þessi stúlka er ein af fjölmörgum ungmennum sem tala af sannfæringu um umhverfismál. Þau búa yfir miklum krafti og ætla að láta verkin tala. Furðulegt væri ef hinir fullorðnu neituðu að taka mark á þeim. Sumir sýna þó einarða tilburði í þá átt.
Nokkrum dögum áður en unga fólkið fyllti þingsal Alþingis og ræddi umhverfismál af festu hafði Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, gert áhyggjur barna af loftslagsbreytingum að umtalsefni á Alþingi og sama mál ræddi hann á Útvarpi Sögu. Áherslur hans eru æði furðulegar. Hann leggur áherslu á að æska landsins fræðist í skólum um sjónarmið þeirra vísindamanna sem telja loftslagsbreytingar ekki vera af mannavöldum.
Nú er það svo að færustu vísindamenn eru sammála um að hlýnun jarðar sé af mannavöldum. Einstaka raddir heyrast mótmæla því en með litlum rökum, samt á sá málflutningur sums staðar upp á pallborðið, eins og til dæmis hjá Bandaríkjaforseta Donald Trump og nótum hans. Það er eftir öðru að málflutningur þessara hættulegu manna eigi hljómgrunn í Miðflokknum þar sem myrk afturhaldssjónarmið hafa hreiðrað um sig. Birgir Þórarinsson talaði á Alþingi um loftslagsmál eins og hann gruni að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu enn ein falsfréttin sem verið sé að bjóða heimsbyggðinni upp á. Ekki er langt síðan þessi sami þingmaður hélt því fram að forseti Filippseyja, hinn alræmdi morðhundur Rodrigo Duterte, væri vaskur maður sem fengið hefði á sig holskeflu af ósanngjarnri gagnrýni.
Á sama tíma og sterk umhverfisvakning á sér stað vafðist ekki fyrir þingmönnum Miðflokksins að setja sig í málþófsstellingar þegar ræða átti loftslagsmálafrumvarp umhverfisráðherra á þingi. Þingmaður flokksins er síðan í algjörri afneitun á vandanum þegar hann heldur því fram að kynna þurfi í skólum málstað þeirra sem halda því fram að loftslagsbreytingar séu ekki af manna völdum. Kenningar sem eru nánast jafn fáránlegar og þær að Jörðin sé flöt. Það er sjálfsagt að vita af skringilegum kenningum, en það á ekki að láta eins og ástæða sé til að taka mark á þeim.
Skoðun

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar