
Loftslagsbreytingar og álag og öryggi bygginga
55 ríki undirrituðu Parísarsáttmálann 2015 með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ísland er aðildarríki að sáttmálanum og hefur það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030. En þrátt fyrir þessa stefnu erum við nú þegar byrjuð að glíma við þær afleiðingar sem fóru af stað í kjölfar iðnbyltingarinnar.
Mikið hefur verið rætt um ýmsar aðgerðir í byggingariðnaðinum til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Til dæmis er Nýsköpunarmiðstöð Íslands að þróa og prófa vistvæna steypu. Límtré (CLT, Cross Laminated Timber) er að ryðja sér til rúms sem byggingarefni í einbýlis- og fjölbýlishúsum hérlendis. Minna hefur verið rætt um aðlögunaraðgerðir, þ.e. hvað erum við að gera til þess að aðlagast þeim loftslagsbreytingum sem eru nú þegar til staðar?
Byggingar eru hannaðar til þess að standast ákveðnar álagsforsendur. Það er að segja efnisstyrkur þarf að vera nægur til þess að standast ákveðið álag. Það eru samt óvissuþættir sem eiga alltaf eftir að leiða til einhvers tjóns. Það er ákveðin óvissa í framleiðslu á byggingarefnum og í uppbyggingu bygginga. Það má reikna með enn meiri óvissu þegar það er verið að áætla álag vegna veðurs. Það er of kostnaðarsamt að hanna til að koma í veg fyrir öll tjón og þess vegna þurfa hönnuðir og notendur að sætta sig við ákveðna áhættu í áreiðanleika bygginga.
Álagsforsendur eru að hluta til ákvarðaðar út frá veðurfari. Byggingar þurfa að standast ákveðið álag frá veðri eins og til dæmis vindálag, rigningarálag og snjóálag. Þegar álagsforsendurnar eru ákvarðaðar er litið til fortíðarinnar. Ef gert er ráð fyrir því að veðurfar muni breytast vegna aukinna gróðurhúsalofttegunda þá þarf að skoða hvaða breytingar eiga eftir að eiga sér stað á líftíma byggingarinnar.
Náttúruhamfaratryggingar Íslands reikna að um einn fjórði af tjónakostnaði síðustu þrjátíu ára sé tilkominn vegna atburða sem tengjast loftslagi. Tryggingafélög í Bandaríkjunum og Bretlandi eru nú farin að mælast til þess að byggingar staðsettar á skilgreindum hættusvæðum séu hannaðar á grunnvelli álagsforsendna sem eru 10-20% hærri en hönnunarforsendur í byggingarreglugerð segja til um. Með því að hækka grunngildi álags er verið að knýja fram sterkari hönnunarlausnir.
Ef það má áætla að veðurfar breytist vegna breytinga í loftslagi verða byggingarnar okkar ekki að vera tilbúnar til þessa að standast það álag? Það er brýnt að skoða hversu mikilla breytinga í álagsforsendum má vænta á næstu 100 árum. Meta þarf hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar til þess að draga úr tjónnæmi bygginga og athuga hversu lengi þær eru að borga sig. Einnig þarf að skoða hvað á að gera til þess að styrkja byggingarnar og mannvirkin sem eru nú þegar í notkun til að lágmarka tjón og kostnað í framtíðinni. Allar rannsóknir benda til þess að aðstæður eigi eftir að breytast og þegar við erum að horfa á 50 til 100 ára líftíma bygginga þarf að meta þessar breytingar og vera tilbúin fyrir framtíðina.
Höfundur er doktor í byggingaverkfræði
Skoðun

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar