Verstappen kom fyrstur í mark en umdeilt atvik átti sér stað er Verstappen tók fram úr forystusauðnum, Charles Leclerc, á 69. hringnum.
Charles, sem ekur fyrir Ferrari, var ekki sáttur með framúraksturinn og var atvikið kært. Verstappen kom einungis þremur sekúndum á undan Charles í mark svo víti hefði kostað hann sigurinn.
SPY: It's like the longest VAR decision ever... #RBspy#AustrianGPpic.twitter.com/zq4AkM3wEd
— Aston Martin Red Bull Racing (@redbullracing) June 30, 2019
Eftir mikið japl, jaml og fuður var ljóst að alþjóðlega formúlusambandið ákvað að refsa ekki Verstappen sem stóð að endingu uppi sem sigurvegari.
The wait is over... @Max33Verstappen *officially* wins the #AustrianGP! #F1pic.twitter.com/lfjZ3DKc99
— Aston Martin Red Bull Racing (@redbullracing) June 30, 2019
Valtteri Bottast frá Mercedes endaði í þriðja sætinu og Sebastian Vettel frá Ferrari í því fjórða. Heimsmeistarinn, Lewis Hamilton, endaði í fimmta sætinu.
Eftir sigurinn er Verstappen kominn með 126 í heimsmeistarakeppni ökuþóra en Valtteri Bottas er í öðru sætinu með 166. Heimsmeistarinn, Hamilton, er á toppnum með 197 stig.
Mercedes er í sérflokki í flokki bílasmiða. Þeir eru með 363 stig, Ferrari er í öðru með 228 stig og í þriðja sætinu er Red Bull með 169 stig.