
Berir rassar í Tsjernóbíl
„Þetta er skothylki úr stríðinu,“ sagði kaupmaðurinn.
Ég flýtti mér að leggja stríðsleifarnar frá mér. Verslunareigandinn, sem einnig var handverksmaðurinn sem framleiddi og skreytti sjálfur vörurnar sem voru til sölu í versluninni, glotti. „Ferðamennirnir fíla þetta.“
Mér varð hugsað til þessa útsjónarsama verslunarmanns í vikunni.
Neikvæð ímynd
Sjónvarpsþættirnir Tsjernóbíl njóta vinsælda um þessar mundir. Ein hliðarverkun vinsældanna eru ferðamenn sem flykkjast á svæðið til að taka af sér „sjálfur“. Á myndum um allt internetið má sjá fólk brosa, gretta sig og geifla og jafnvel bera afturendann mitt í eyðileggingunni sem kjarnorkuslysið olli.
Höfundur Tsjernóbíl þáttanna bað fólk nýverið um að sýna tillitssemi; hörmungar hefðu átt sér stað, harmleikur. Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, virtist hins vegar ekki taka „sjálfurnar“ óstinnt upp. Þvert á móti.
Síðastliðinn miðvikudag lýstu stjórnvöld í Úkraínu því yfir að þau hygðust gera svæðið í kringum Tsjernóbíl kjarnorkuverið að ferðamannastað. „Tsjernóbíl hefur lengi haft neikvæð áhrif á ímynd Úkraínu,“ sagði forsetinn. „Það er tímabært að því sé breytt.“
Ég klóraði mér í höfðinu yfir uppátækinu. Hvað átti manni að finnast? Var þetta ekki hálfgerð sturlun? En svo rifjaðist upp fyrir mér annar áfangastaður í Sarajevó.
Þrjár kynslóðir
Bosníustríðið sem geisaði á árunum 1992 til 1995 er versti hildarleikur Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Talið er að 100.000 karla, kvenna og barna hafi látist í þjóðernishreinsunum. Tæplega 14.000 manns létust í umsátrinu um Sarajevó er borgin var í herkví.
Við upphaf umsátursins um Sarajevó bjuggu þrjár kynslóðir Kolar fjölskyldunnar undir sama þaki í úthverfi borgarinnar. En þegar árás var gerð á hverfið hrökklaðist fjölskyldan burt af heimili sínu. Síðar gerði Bosníuherinn húsið (eða það sem eftir var af því) upptækt og gróf göng frá húsinu alla leið inn í borgina. Göngin voru lífæð Sarajevó á meðan á umsátrinu stóð en um þau voru flutt matvæli, lyf, vopn og fólk.
Einhverjir úr Kolar fjölskyldunni hjálpuðu til við að grafa göngin á meðan aðrir börðust í stríðinu. Amma og afi Kolar fengu að búa í bílskúr hússins meðan það var í umsjá hersins og buðu þau gjarnan þeim sem áttu leið um göngin upp á vatnssopa og brauðbita.
Að stríðinu loknu sneri Kolar fjölskyldan aftur til síns heima. Almenningur í Sarajevó gerði sitt besta til að púsla hversdagsleikanum saman eftir átökin og endurheimta líf sitt. Göngin gleymdust.
En þegar Kolar fjölskyldunni gekk illa að koma undir sig fótunum og finna atvinnu öðluðust göngin nýjan tilgang. Fjölskyldan tóku sig til og útbjó „Gangasafnið“. Þau söfnuðu saman öllu því sem þau gátu fundið tengt sögu ganganna og sáu til þess að það litla sem eftir var af göngunum sjálfum yrði varðveitt. Gangasafnið er nú orðið eitt vinsælasta safn Sarajevó. Safnið er einkarekið og rukkar Kolar fjölskyldan gesti um aðgangseyri fyrir að berja munna ganganna og safnið augum. Göngin sem urðu Sarajevó til bjargræðis urðu lífæð Kolar fjölskyldunnar eftir stríðið.
Stórfurðuleg dýrategund
Mannkynið er skrítið. Eina stundina er það óstöðvandi eyðileggingarafl, jafnskeytingarlaust í garð náungans og nánasta umhverfis síns; þá næstu úrræðagott, uppátækjasamt og fróðleiksfúst. Stundum er ekki annað hægt en að yppa einfaldlega öxlum yfir þessari stórfurðulegu dýrategund.
Skoðun

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar