Árið 2018 voru 59 prósent þeirra sem óskuðu eftir aðstoð umboðsmanns skuldara með smálán. Ondrej segir að fundirnir hafi skipt máli.
„Gögn frá US eru mjög mikilvægt framlag í okkar áhættumat og ákvarðanir okkar um hverjum skal lána. Til dæmis þá komum við í veg fyrir að viðskiptavinur sem leitað hefur til US fái lán hjá okkur,“ segir Ondrej.
Sjá einnig: Smálán heyra nú sögunni til
„Við lánum ekki til einstaklinga undir tvítugu og við höfum tekið upp herta skilmála fyrir viðskiptavini á aldrinum 20 til 25 ára. Að því sögðu þá myndi það hjálpa mjög ef skráningar US yrðu aðgengilegar fjármálafyrirtækjum. Ég hef rekist á nokkur dæmi þess að viðskiptavinur leiti til US, fari í greiðsluaðlögun en taki svo önnur lán í millitíðinni. Slík skrá myndi hjálpa mjög til að koma í veg fyrir slíkt.“
Neytendasamtökin hafa gagnrýnt smálánafyrirtækin og Almenna innheimtu ehf., innheimtufyrirtæki þeirra á Íslandi, harðlega að undanförnu og hvatt lántaka til að hætta að greiða af lánum yfir lánskostnaði.
„Við höfum fengið fjölda mála þar sem lántakendur smálána hafa greitt margfalt meira til baka en þeim ber lögum samkvæmt, jafnvel sem nemur mörgum hundruðum þúsunda,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna.

„Í maí síðastliðnum tilkynnti Almenn innheimta okkur að þeir myndu hætta að starfa með okkur ef við breyttum ekki viðskiptamódelinu okkar á Íslandi og við gerðum það. Við gerum ekki ráð fyrir öðru en að við getum haldið áfram samstarfi okkar við Almenna innheimtu,“ segir Ondrej.
Vörumerkin fimm eru í eigu eCommerce 2020, sem er í eigu Kredia Group. Ondrej segir enga starfsemi á Íslandi. „Kredia Group eða dótturfyrirtæki þess hafa enga starfsemi á Íslandi. Engir starfsmenn, engin skrifstofa. Auðvitað getur þetta breyst í framtíðinni. Ef það gerist þá munum við tilkynna það.“
Ondrej segir að lykilstarfsemin fari fram í Tékklandi. „Heimilisföngin í Kaupmannahöfn, Lundúnum og Prag sem blaðamenn heimsóttu eru skráð húsfesti okkar fyrirtækja. Ég heimsæki þessar skrifstofur oft. Flest af okkar starfsfólki vinnur hvaðan sem það vill. Við lifum í stafrænum heimi,“ segir Ondrej.
„Kredia Group samanstendur af 20 sérfræðingum á sviði fjármála, áhættumats og markaðsmála. Hópurinn starfar í Tékklandi, Bretlandi og Danmörku. Annarri þjónustu er úthýst.“
Fram til þessa hefur verið á óljóst hver í eigi í raun smálánafyrirtækin, Ondrej segir það ekkert leyndarmál. „Kredia Group skipti nýverið um eigendur. Michal Mensik, sem átti fyrirtækið, ákvað að hætta og ég ákvað að kaupa það. Við höfum möguleika á því að bjóða viðskiptavinum okkar á Norðurlöndunum upp á áhugverðar vörur á sviði fjármálatækni, að sjálfsögðu fylgjum við lögum um neytendavernd á hverjum stað fyrir sig.“